Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.01.1931, Qupperneq 26

Skinfaxi - 01.01.1931, Qupperneq 26
26 SKINFAXI faxa þykja svo fallegar; eg er ákaflega vantrúaður á, að unga fólkið setjist við að læra þær og rauli þær i rökkrinu, sér til sálubótar. Býst frekar við, að það bregði heldur fyrir sig fallegu nýtízku danslagi, eða einbverju þessháttar. Æskan getur aldrei aðhyllst „liið dauðvona og dauða“. Hún á „enga fortíð, aðeins framtíð“, og fyrir framtíðina starfar hún og lifir. Við framtíðina eru bundnar vonir hennar og þrár. — Framtíðin er henni allt. — Þess vegna er mér það nokkur ráðgáta, hve ungmennafélagshreyfingin er mótuð af fortiðinni. Öllum íslendingum er það nú ljóst, að þjóðin er stödd á miklum timamótum. Sá tími er þegar kom- inn, að liún getur ekki lengur lifað því einræna nátt- úrubarnalífi, er einkennt hefir hana lengst af. For- tíðin liggur að baki, eins og ljótur draumur, — sem bún óskar ekki eftir að endurlifa. Menningarverð- mæti fortíðarinnar eru henni gildislaus. Þess vegna er það spursmál dagsins í dag, að finna ný, skapa ný menningarverðmæti. -— En liitt er satt, — að af því að bið „gamla og góða“ liefir hrunið svo skyndi- lega í rúst, þá er ekki nema eðlilegt, að viða megi sjá missmíði og vankanta á hinni nýju menningu. En þar fyrir er ekki ástæða til að hika við, né hverfa aftur „til kjötkatlanna í Egyftalandi" — hinnar gömlu menningar, — lieldur ber að halda áfram örugglega og óhikað. — — Það má ef til vill likja islenzku þjóðinni nú, við ungling, sem glatað hefir barnatrú sinni, en bvorki getur né vill aðbyllast liana á ný, heldur skapar sér nýtt lífsviðhorf, í samræmi við lífsreynzlu sína og andlegan þroska. Að bin nýja menning — menning framtiðarinnar -—■ megi verða sem heillaríkust, — að því ber okkur að keppa, — það er sönn þjóðrækni. Skúli Guðjónsson.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.