Skinfaxi - 01.01.1931, Side 27
SKINFAXl
27
II.
Úr svarbréfi sambandsstjóra.
Eg er borinn íil arfs frá feðrum mínum og mæðr-
um, liðnum kynslóðum — fæddur með ýmsum ein-
kennum og eiginleikum, sem myndazt liafa og mót-
azt í ætt mihni gegn um aldirnar. Einkennin greina
mig frá öðrum einstaklingum, og eiginleikarnir marka
lífsstefnu mína, livort tveggja að viðbættu því, sem
eg hefi bætt við mig sjálfur. Eg liefi lifað þriðjung
aldar. Öll þessi 33 ár hefi ég verið að safna mér
verðmætum, sem gildi liafa fyrir mig persónulega,
en mörg eru vætkisverð öðrum. Eg hefi t. d. aflað
mér lífsreynslu, þekkingar, leikni — og endurminn-
inga, sem margar eru mér helgir dómar. Eg hefi
fengið ýmsar eignir, sem miðaðar eru við smekk
minn og áhugamál, störf mín, efni og ástæður. Sum-
ar eignir mínar eru dýrmætari mér en öðrum. Mál-
verkið af átthögum mínum meta aðrir eftir listgildi
þess — eg met það eftir því og öðru til. Sumar eign-
ir mínar — jafnvel þær, sem sérgildi hafa fyrir sjálf-
an mig — eru breytilegu mati háðar, eftir tíma og
ástæðum. Eg óx upp úr fermingarfötunum mínum
og tvítugsfötin eru slitin og týnd. Fötin mín í dag
eru öðruvísi en þau í hittiðfyrra og enn öðruvísi voru
þau fvrir tíu árum. Snið og gæði hefir í livert sinn
farið eftir andartakskröfum mínum og stundar efna-
hag.
Eg er ekki að tína þetta fram í því skyni, að segja
þér fréttir af sjálfum mér, heldur gríp eg mig sem
nærtækt dæmi að tákna þjóð vora sem lieild. Hún
fæddist af annari þjóð og erfði frá henni einkenni
og eiginleika, sem skapað hafa hana ásamt því, sem
liún hefir mótazt á liðinni æfi. Þjóð vor hefir lifað
í þúsund ár og safnað sér verðmætum allar þær tíu
aldir, bæði sýnilegum og hugrænum. Hún hefir aflað