Skinfaxi - 01.01.1931, Qupperneq 40
40
SKINFAXI
ingaríkan dag komum við þangað kl. að ganga 11 um
kveldið.
Á brautarstöðinni tók á móti okkur ritarinn í Noregs
Ungdomslag, Aslak Torjusson, sá maðurinn, sem svo
dásamlega hafði undirbúið og ráðstafað för okkar,
hverjum degi og mínútu. — 1 Osló bjuggum við í húsi,
sem héraðssamband Oslóar á og nefnist Landsbeimen
for Ungdomen. Þá tvo daga, sem við dvöldum í Osló,
fórum við upp á Holmenkollen, ]>ar sem hin víðfrægu
skiðamót fara fram árlega, og út á Ekeberg, þar sem
sjómannaskólinn er, en þaðan er fegurst útsýni yfir
borgina og fjörðinn. Einnig skoðuðum við byggða-
safnið á Bygdö, sem er mjög merkilegt safn, með mörg-
um fornum byggingum og fágætum niunum. Sömu-
leiðis Osebergskipið, stórt víkingaskip, sem fannst i
grafhaug að Oseberg fyrir nokkrum árum, með ýms-
um merkilegum munum, en munirnir eru á sérstöku
safni, sem við einnig sáum, auk ýmsra annarra safna.
Að kvöldi fyrra dagsins, sem við vorum i Osló, var
samkoma fyrir okkur, þar sem mættir voru, auk ýmsra
fremstu manna félagsins, nokkrir íslendingar úr Is-
lendingafélaginu þar, og flokkur sá úr ungmennafélag-
inu, sem sýnir þjóðdansa í Bygdö á hverjum sunnu-
degi. Fengum við þar í fyrsla sinn að sjá norska þjóð-
dansa og var kvöld þetta liið ánægjulegasta. — Með
okkur var jafnan í Osló Thorstein Christensen, sem
hingað kom 1924. Gerði hann, ásamt Torjusson og
stjói’n félagsins, allt til að gei’a dvöl okkar þar sem
ánægjulegasta og gagnlegasta og tókst hvorttveggja vel.
— í Osló fengum við fyrstu regnskúrina í Noregi og
höfðum þá dvalið þar í landi i rúman hálfan mánuð.
Frá Osló fórum við að morgni 5. ágúst til Notodden.
Þar tók á móti okkur Olav Kasin, ágætur og skemmti-
legur maður. Iiann flutti okkur i bíl inn í Ileldal til að
sjá þar garnla og sérkennilega stafkirkju frá 12. öld,
en um kvöldið vorurn við boðnir lil Islendings, Bagúels