Skinfaxi - 01.05.1931, Blaðsíða 1
Skinfaxi V. 1931.
Hnífskaft. RíkarSur Jónsson.
Eg fagna þér, vor!
Eg fagna þér, fagna þér, vor,
þú frelsari norðarheims!
Á himni og jörðu eg horfi’ á þín spor
við heiðhros hins djúpa geims.
Vorn útheim eldi fer
þin árvökul langdegissól,
unz Ijósinu helgað þitt landnám er
— þitt landnám að gzla pól!
Eg fagna þér, vaxandi vor,
sem vekur hvert blundandi frjó
og fram í liinn lífkvika, Ijómandi dag
/ní leiðir þann mátt, sem þar bjó.
Þú Ijósmóðir lífsins á jörð,
sem leysir þess nauðabönd,
hvert náttúru-barn hreinni blíðhimins laug
þú baðar mjúkri hönd.
Eg fagna þér, fagra vor,
sem fléttar oss blómstur-kranz,
og breiðir þitt dýrlega blóma-skrúð
á braut liins jarðbundna manns.
Hvað mundi frá moldinni lágt
fái manninum hærra lyft,