Skinfaxi - 01.05.1931, Page 11
SKINFAXI
111
Vorið dregur eitthvað út
undan frosnum bakka:
hefir geymt þar grænan kút.
gef mér nú að smakka!
Júnsmessiinótt.
Safna kröftum grösin græn,
glampar á hverja örðu;
hneigir sig i blíðri bæn
blessuð nótt að jörðu.
Nóttin kveður ástar óð
alla móa og tjarnir kring um
með sunnanvind og sólarglóð
i sínum ungu tilhneigingum.
Aftanstund er oftar sár
en menn liljóðbært láta;
veðrið er með votar brár. —
Vertu nú ekki að gráta!
Sólhvörf.
Dýrt er Ijós um loftin grá,
lítil birtuneyzla;
gömul sólhvörf okra á
ofurlitlum geisla.
Hauslvísa.
Storma vofur vaða reyk,
vingsa fylgju dökkri;
Hrævareld í lausaleik
loftið á með rökkri.
Vatt sér liaust á vorsins lóð,
veinaði naust og tindur;
kvað við raust sín kögurljóð
kvalinn austanvindur.
Krapar inn uin vík og vog,
væl er úti að heyra;