Skinfaxi - 01.05.1931, Page 13
SKINFAXI
113
Stældur Bólu-Hjálmar og Látra-Björg.
Slyng cr tóa að grafa göng,
glingrar spói um mýrahring,
kring uin mó viö hrauna hröng
hringlar snjóugt beitilyng.
Litur á hesti.
Litaskrautið hugumhlýtt
haföi’ hann aSalhorinn:
sumt var rautt og sumt var hvítt.
Svo cr jörð á vorin.
TJm folald.
Sporið hrcina og þelið liitt
þúsund mcinum bifa;
þú ert eina yndið mitt
ef eg reyni að lifa.
Úr vísum Litla-Rauðs.
Enginn veit, hvort verður ber
vísirinn, sem við fundum,
en það er gott að gera sér
góðar vonir stundum.
Þornuð lind.
Eg er fár sem feyskið bar,
föl og sár er myndin.
Þur er báran Bakkusar,
blessuð táralindin.
Margt er öfugt, meinin ný,
mörg er töfin, þung sem blý.
Mörg er gjöfin, gœttu að því;
glóa höf og morgunský.
Fyrst að engan annan stað
á eg þessum vænni —
gott cr að halla höfði að
hundaþúfu grænni.