Skinfaxi - 01.05.1931, Síða 15
SKINFAXI
115
og horft á þenna sómasið.
Svona er stundum hreinlætið.
(2. Sam. 11, 2,—12. 24.).
Nú er kalt á kji'iku i dag,
krapar í lífsins slabbi.
Vertu önnur Abizag;
eg skal vera Dabbi.
(1. Sam. 25.).
Allavega endingar
eru’ á bragafótum;
hleypur margt í hendingar
á hagyrðingamótum.
Sögunefndir.
íslendingar hafa jafnan verið taldir söguþjóð, og
eiga sjálfsagt skilið að vera kallaðir það. Á síðari
tímum, að minnsta kosti, má þjóðin þakka þenna
hróður sjálfmenntuðum alþýðumönnum. Þeir gerðu
aðallega tvennt: rituðu upp eldri sögurit og varð-
veittu þau frá gleymsku og glötun, og i annan stað
settu saman rit sagnfræðilegs efnis og tóku að þeim
heimildir úr hókum, skjölum og af vörum manna.
Sögufróða alþýðumenn síðastliðinnar aldar má með-
al annars nefna þá Brynjólf Jónsson frá Minna-Núpi
og Gísla Konráðsson. Engir sjálfmenntaðir menn nú
á dögum munu jalnast á við þessa fræðaþuli. Að
mörgu leyti eru samt miklu hetri skilyrði nú fyrir
menn, að setja sarnan sögurit, en nokkru sinni áður.
Blöð, hækur, skjöl og ýmiskonar rit, sem til eru á
söfnum, og árlega eru gefin út, eru ótæmandi heim-
ildir fyrir ýmiskonar sagnafróðleik. En engu að sið-