Skinfaxi - 01.05.1931, Side 18
118
SKINFAXI
Frelsi.
Við yzta sjónhring mannsandans hillir upp úr hafi
eilifðarinnar sólroðna strönd. Að haki liennar liggur
land hins fullkomna frelsis, laugað ljósdýrð eilífs
sannleika. f áttina þangað iiafa spámenn og leiðtog-
ar mannkyns hvesst sjónir. Skyggni þeirra er skarp-
ara en annarra manna, og frá þeim liefir mannkynið
fræðslu um liið fyrirheitna land, þar sem það á i
vændum eilífa hátíð, þegar mannlegur vilji er runn-
inn saman við og orðinn eitt með liinum æðsta vilja,
alfrjáls og almáttugur. Á liátíðlegustu stundum lífs
vors göngum vér upp á sjónarhæð og snúum augum
vorum í áttina til þessa fjarlæga lands. Þá sjáum vér
djarfa fyrir tindum þess, eins og turnum glæsilegrar
Ijorgar. Oftast er það þó hulið mistri og móðu, því að
milli vor og þess liggur ómælishaf vanþekkingar,
veikleika og skammsýnnar sjálfselsku. Frelsisþráin
er vöggugjöf mannkynsins. En þrældómur hefir verið
Iilutskifli þess. Úr djúpi sögunnar herasl til vor stun-
ur, andyörp og örvæntingarraddir þeirra kúguðu og
undirokuðu. Voldugar, æstar og ógnandi raddir þeirra,
sem „hristu sín hönd“, risu gegn okinu, vildu lieldur
missa lífið en frelsið. Frelsisþráin er hæsti tónninn
i liörpu mannsandans, laufríkasta tré og litfegursta
smáblóm í aldingarði hans, bjartasli gimsteinn í
kórónu Iians.
Hvað er frelsi? Vér vitum, að það er eitthvað óend-
anlega dýrmætt og dásamlegt. Engin þau verðmæti
eru til, sem ekki hefir verið fórnað til þess að öðlast
það eða verja. Flest glæsilegustu, áhrifamestu hetju-
verk veraldarsögunnar Iiafa verið unnin í þágu frels-
is í einliverri mynd. Fjöldi smáþjóða á sögu, skráða
blóðletri á minnisblöð mannkyns, um þjáningar, har-
áttu og hlóðugar fórnir fyrir stjórnarfarslegt frelsi.