Skinfaxi - 01.05.1931, Side 23
SKINFAXI
12.3
ingju vorri. — Valdræninginn er hættulegur i:öAuil
frelsisins. Hann verndar ranglæti og viðheldur mis-
rétti. Hann liikar ekki við að leiða bölvun og þján-
ingar blóðugra styrjalda yfir þjóðirnar, til þess að
verja sérréttindi og kúgunaraðstöðu þjóða eða stétta.
Fjöldinn er leiksoppur í liöndum hans. Hann teflir
með líf og hamingju þúsunda og miljóna manna, líkt
og væri það auðvirðilegir smápeningar á liorði spila-
mannsins. llver sá valdliafi, sem þjónar ekki frelsi
og réttlæti — sem teknr ekki málstæð smælingjans
og réttir hlut bins kúgaða — er valdræningi, því að
hann liefir öðlazt vald sitt með fölskum forsendum,
þó að bann hafi verið löglega kosinn. Vald er i eðli
sínu aðeins umboð almennings. Og hver mundi fá
öðrum umboð til að þjá sig og kúga, ef hann væri
sjálfráður og óblekktur? Alþýða allra landa þjáist
nndir duldu og augljósi oki arð- og vald-ræningja
heimsins. Fáfróðir einstaklingar megna ekkert gegn
kúgun þeirra. Þekking og samtök eru einu vopnin,
sem á þá bíta. Það, sem krafizt verður af liverjum
einstaklingi, er að liann reyni að sjá og skilja orsak-
ir þjáninganna, og skijii sér ótrauður i fvlking þeirra,
sem frelsið verja. Hver sem vanrækir það, gerist fyrst
og fremst böðull síns eigin frelsis og þar að auki með-
sekur um kúgun og rán.
Af kennilýð og málflytjendum trúarbragða, stjórn-
málastefna, allskonar sérkreddna og kenningakerfa,
stafar andlegu frelsi voru liætta, ef dómgreind vor
og samvizka standa ekki trúlega á verði. — Trúar-
brögðin liampa sínum opinberunum, belgisögnum og
dulfræðum, og liafa á lofti svipu eilífrar fordæming-
ar, ef ekki er skilyrðislaust kropið að ölturum þeirra.
Stjórnmálastefnur leitast við að harðbnýta sál vora
og sannfæringu með æsingum, rógi, falsrökum og
ósannindum. — Sérhver stefna og kenninga-kerfi