Skinfaxi - 01.05.1931, Side 27
SKINFAXI
127
í nokkrar greinar i 1. h. Skinfaxa þ. á. Greinin endar á þess-
um orðuni: „Vil Föroyingar eru fegnir við at frœtta góð
tíðindi frá ungmennafelögunum í íslandi og Skiilablaðið skal
her hera fram sínar bestu heilsanir til teira og ynskja teim-
um eydnu til starv sítt í framtiðini.“
Héðan og handan.
Úr bréfi.
Eftirfarandi línur eru teknar með Bessaleyfi úr bréfi til
ritstjóra Skinfaxa, frá Ingimari Jóhannessyni:
„------Afmælisheftið Jíkaði ágætlega hér. Sumir sögðu, að
svar þitt væri það bezta, sem þú hefðir skrifað í Skinfaxa.
Þóttir þú svara ágætlega. Iíg er á sama máli. Og eg er Skúla
þakklátur fyrir lians grein líka. Hún er fjörlega skrifuð, en
óþarfur uppþembingur i henni. Hvernig ætti æskan að láta
sér standa á sama um fortíðina? Eins og þar sé allt dautt
og ómerkt? Eins og jurtir geti vaxið ofan cða utan við jarð-
veginn, en ekki í jarðveginum sjálfum? Iíins og æska nútirn-
ans þurfi ekki að lita um öxl og reyna að skilja, í hvaða
sambandi hún stendur við fortiðina? Hún þarf þess þó að
minnsta kosti til þess að skilja, að hún, nútimaæskan, ber
ábyrgð á afkomendum sínum, eða gagnvart þeim. Annars kynni
hún að gleyma, því og fara að trúa, að hún ellist aldrei.
„Framtíðin er henni allt,“ segir Skúli. Þetta er satt um suma
menn. Þeir gleyma meira að segja nútímanum, hvað þá for-
tíðinni, og eru svo altaf að reka sig á..Mér þykir vænt um
móðurmálið, af þvi að frændur mínir hafa talað það mann
fram af manni .... og gömlu byggingarnar af því, að þær
hafa skýlt ætt minni í lifsbaráttu liðinna alda og eru mótað-
ar af höndum þeirra og hugum. Mér finnst það skylda min,
að minnast lífsbaráttu liðinna kynslóða með þakklæti og
hlýjum hug, meðal annars af því, að siðustu einstaklingar
ættar minnar hafa reynt að búa í haginn fyrir mig og mina
samherja; þeir hafa alið önn fyrir mér, e 1 s k a ð mig frá
því eg sá dagsins Ijós, þar til þeirra augnaljós slokknuðu.
Og ]>essu ætti eg að gleyma. Þetta á að vera mér engis virði
— auðvitað mér eins og æskunni, — en framtíðin allt! Nei,
minn góði Skúli. Eg virði og elska æskuna og framtíðina.
Flg vil halda lnig mínum opnum og hönd minni útréttri, til
þess að taka á móti nýrri þekkingu .... En eg vil reyna að