Skinfaxi - 01.12.1931, Blaðsíða 19
SKINFAXI
175
sæti, hlýtur það að liafa örlagaríkar afleiðingar, fyrst
og fremst fyrir líkamlega heilbrigði, en einnig siðlega.
Góðu líkamsuppeldi fylgja raunar lieilbrigð meinlæti.
Þau eru enganveginn andstæð lífinu. í Grikklandi hinu
forna voru ]>au eðlilegt tæki til alls verulegs líkamsupp-
eldis. Þau auka þannig hfsgildið. Því að mcð þeim nær
maðurinn valdi á líkama sínum og eykur viðnámsþrótt
hans og starfsþrek.
Loks er það, að láta á móti sér, mikilsvert til að ná
valdi á kynfýsnum sínum. iÞví að vaninn, að láta þegar
undan líkamsþörfum, veikir viðnámsþróttinn gegn
girndum. Alhliða líkamsuppeldi er þannig undirstaða
siðlegs uppehhs, og má þó eig'i blanda þvi tvennu sam-
an, eins og oft er gcrt meðal íþróttamanna nútímans.
A. S. þýddi.
Ársafmæli U. M. F. A.
6. jan. 1907.
Er Ungmennafélag Akureyrar var að verða árs-
gamalt, þótti sjálfsagt að minnast þess rækilega.
Félagið var fámennt og fjárliagsleg geta lítil, en
framsóknarþráin og liugdirfðin því meiri. Nefndir
voru kosnar og undirbúningur hafinn. Nú voru stöð-
ug fundahöld, ráðahrugg og hollaleggingar, þar sem
tveir eða fleiri félagar voru samau komnir. Mikið
átti að færast í fang. Félaginu vildum við auka álit,
fjölga félögunum að miklum mun, og þá að sjálf-
sögðu halda áhugamálum félagsins og hugsjónum
sem hæst á lol'ti.
Að sjálfsögðu hefir skemmtanalöngun okkar auk-
ið nokkuð áhugann lijá sumuin, en það má óhætt
segja félögunum til verðugs liróss, að hún var ekki