Skinfaxi - 01.12.1931, Blaðsíða 9
SKINFAXI
165
Mikill hluti tápmestu unglinga kaupstáöarins störfuðu
í félaginu að íþróttum og þjóðlegum og nytsömum
viðfangsefnum. Átti félagið miklum vinsældum að
fagna meðal bæjarbúa. Allmargir Árvekringar eru nú
orðnir hlutgengir i starfsemi þjóðfélagsins og liygg eg
að þeir flestir telji sig i þakkarskuld við Guðmund frá
Mosdal og ungmennafélagið, fyrir aukið víðsýni og
manndáð.
Síðan Guðmundur gerðist ungmennafélagi hefir hann
jafnan verið fulltrúi á Sambandsþingum og héraðs-
Hilla, eign Árna Eylands.
þingum, bæði syðra og veslra. Varaforseli Héraðssam-
bands ungmennafélaga Vestfjarða hefir hann verið um
langt skeið og ritari i stjórn Sambands Ungmennafélaga
íslands siðan árið 1924.
Útgáfu „Skinfaxa“ annaðist Guðmundur í hálft ann-
að ár, ásamt Birni Guðmundssyni skólastjóra á Núpi.
Haustið 1910 sigldi hann til útlanda og dvaldist tvö
ár í Noregi, Svíþjóð og Danmörlcu. Lagði liann stund
á að kynna sér handiðju og listiðnaðarskóla í þessum
iöndum, svo og hverskonar liagleiks- og heimaiðnað;
dvaldi liann við nokkrar slíkar stofnanir, en heimsótti
aðrar. Jafnframt skoðaði hann og rannsakaðí allskon-
ar lista- og þjóðminjasöfn, og ])á einkum þau, er forn-
an og norrænan hagleik höfðu að geyma. Einnig afl-
aði hann sér talsverðrar þekkingar í byggingarlist og
húsagcrð. Skoðaði fjölda af merkisbyggingum og
mannvirkjum, þar sem því varð við komið.
Þá kynntist hann og mjög ungmennafélags- og lýð-
skólahreyfingunni norsku, lærði til hlítar landsmálið
norska og tengdist vináttuböndum við marga. Eftir