Skinfaxi - 01.12.1931, Blaðsíða 6
162
SKINFAXl
ið, eitt af hinum góðu islenzku heimilum, þar sem regla
og trúrækni ríkti og leitast var við að ástunda kristi-
legar dyggðir. Heimilisfólkið var bókhneigt og ríkt af
mörgum fornum og þjóðlegum fróðleik, enda var þar
bókakostur góður.
1 æsku vandist Guðmundur hverskonar störfum, sem
til féllu, bæði til sjós og lands, svo sem títt var í sveit-
um. Um skóla var þá enga að ræða, livorki fyrir börn
né unglinga, en snemma bvrjaði Guðmundur á því,sem
bann allra manna frekast, þeirra er eg bcfi kynnst,
ástundar þann dag í dag: að notfæra sér fristundir sin-
ar. Ilann leitaðist við að afla sér fróðleiks, bæði með
lestri bóka og samantínslu allskonar fræði- og þekk-
ingaratriða, er bann náði til; margt af sliku hefir bann
fesl á blöð og á í fórum sínum.
Strax í æsku hneigðist Guðmundur mjög til smíða og
hagleiks. Hefi eg séð nokkuð af smíðisgripum hans,
bæði úr málmi, beini og tré, frá þeim árum og gætir
þar furðulegs liagleiks og listfengi.
Um það bil, sem Guðmundur var að vcrða fullorðinn,
barst ungmennafélagshreyfingin bingað til lands og hóf
liér göngu sina. Guðmundur varð strax snortinn af
binni göfugu hugsjón ungmennafélaganna og mcð
brennandi áhuga á að verða þessari stefnu að liði, tókst
honum, miklu fyr en vænta hefði mátt eftir aðstöðu og
staðháttum, að stofna fyrsta ungmennafélagið á Vest-
fjörðum. Það var 26. janúar 1908. Félagið hlaut nafnið
„Valþjófur"; stofnendur voru 12 að tölu. Stefnuskrá
og lög voru sniðin eflir því, sem sambandslögin gerðu
ráð fyrir og enn Iialdast að mestu. Tilbögun öll var og,
að ]>ví sem verða mátti, sniðni eftir því, sem önnur bin
fyrstu félög böfðu og vel þótti gefast.
Fyrir forgöngu Guðmundar og bvatningu var ung-
mennafélagið „Vorblóm“ á Ingjaldssandi stofnað 22.
marz 1908; lifir það félag enn góðu lífi. Veturinn eflir,
C. desember 1908 var stofnað Ungmennafélag Önfirð-