Skinfaxi - 01.12.1931, Blaðsíða 16
172
SKINFAXI
sennilega skrifa það á reikning tóbaksnautnarinnnar.
Menn hafa líka þótzt veita því atliygli, að samband sé
milli tóbáksnautnar og ýmsra magasjúkdóma, og má
þar til nefna magasár. Þá hefir tóbak skaðleg áhrif á
skjaldkirtilinn, en Iiann er afar-þýðingarmikið líffœri,
bæði fyrir vöxt og skynsemi. Því miður er misnotkun
áfengis eigi óþekkt Iieldur meðal unglinga. Hætturnar,
sem því fylgja, eru kunnar, þó að æskumennirnir sjálf-
ir virðist oft ekki taka þær alvarlega.
Loks er kynferðileg misnotkun skaðleg lieilbrigð-
inni, enda þótt yfirdrifnar séu hættur þær, er læknar
töldu fyrrum stafa af sjálffróun (onani), en sú kyn-
ferðisnautn freistar lielzt unglinga. En eftir því sem
Poeld hefir leitt i ljós, er sæðið mjög þýðingarmikið
fyrir efnaskifting likamans og gerir ýms eiturefni ó-
skaðleg. Samkvæmt því hlýtur sjálffróun að Iiafa skað-
væn álirif á lieilsuna og líkamsþroskann, því að við
hana missir líkaminn óeðlilega mikið sæði.
Líkamsup])eldi er því afarnauðsynlegt, ef æsku-
menn eiga að ná fullum líkamsþroska. Slíkt uppeldi
verður sumpart að stefna að því, að vinna á móti öllu
því, sem liamlar líkamsþroskanum og skaðar hann,
og sumpart að auka mótstöðuþrótt unglinga gegn þeim
freistingum, sem hætta fvlgir fyrir heilsu þeirra.
Líkamsuppeldi er fyrst og fremst æfing í lieilbrigði,.
og svo í þvi, að ná valdi yfir líkama sínum og þörfum
hans. Það er þó eigi auðvelt, að fá unglinga til slikrar
æfingar, þar sem þeim fylgja — framan af a. m. k. —
óþægindakenndir og sjálfsafneitun. Bæta verður sjálfs-
afneitunina upp, svo að þægindakenndir myndist, er
verði unglingunum girnilegar. Þetta er einmitt það,
sem skátahreyfingin gerir. í útilegum verða menn að
neita sér um hitt og þetta, sem þeir eru vanir Iieima.
En þægindatilfinningin, sem sjálft útilegulífið gefur,
yfirgnæfir þelta gersamlega. Skemmtilcgustu og kær-
ustu minningar frá útilegu eru oft bundnar við örðug-