Skinfaxi - 01.12.1931, Blaðsíða 24
180
SKINFAXI
sumarnótt tekur liugann föstum tökum og lætur mig
gleyma bátnum, sem öldurnar vagga milli skerjanna
fyrir mynni Gautelfar. Augað liættir að skynja daufa
birtu og hljóðbylgjurnar verða máttlausar. Mér fer
eins og riddaranum, sem Rembrandt málaði: Eg
lifi í hugarheimum. Viðhurðir dagsins og rás tírnans
víkja fyrir ofurmagni fallegra hugsana. Er það ekki
tákn þess göfugasta, sem lífið á?
Þóroddur Guðmundsson.
Héðan og handan.
Húsmæðrafræðsla á Suðurlandi.
Alþjóð manna er að verða það ljóst, að geisimikil nauðsyn
er á, að konur njóti fræðilegs undirbúnings undir húsinóður-
störf, svo mjög sem hagur heimilanna og heilsa og þroski al-
mennings eru undir komin, hvernig þau eru af hendi leyst.
Húsfreyja ver tekjum heimilis til fæðu og fata og þarf kunn-
átlu lil að geta gert það sem hagkvæmast. Hún skammtar
heimafólki mat og ræður með þvi nokkru um heilsu þess.
Hún veldur mestu um útlit og hrag heimilis, en slíkt hefir
feikilega menningarþýðingu, frá eða til. Og örlagaþræðir
æskunnar renna um greipar henni, þar sem hún fjallar mest
um uppeldi barna og á viðkvæmustu skeiði. Mjög veltur að
vísu á hæfileikum um öll þessi störf, hvernig unnin eru. En
í þeim öllum getur undirbúningsnám verið ómetanleg hjálp.
Síðustu ár liafa risið upp húsmæðraskólar í þremur fjórð-
ungum landsins. Suðurland eilt á engan slikan skóla, nema
ófullnægjandi námsskeið í Reykjavík. Má öllúm vera Ijóst, að
svo búið gelur ekki staðið. Enda er þegar vaknaður nokkur
hugur á umbótum.
Tvær stefnur munu uppi vera í húsmæðrafræðslumáli Sunn-
lendinga: Reykvískar stórkonur vilja hafa einn húsmæðra-
skóla fyrir Suðurland — í Reykjavík. Konur „austan Fjalls“
vilja hafa tvo skóla, annan fyrir Reykjavík, hinn i sveit, fyrir
Suðurlandsundirlendi. Telur Skinfaxi hið síðara eitt fullnægj-
andi, því að sill heimilið á að vera með hvoru móti, í kaup-