Skinfaxi - 01.12.1931, Blaðsíða 25
SKINFAXI
181
stað og í sveit. Og aðkallandi nauðsyn er á báðum skólunum.
Vafalaust á að stefna að þvi, að húsmæðraskólinn „austan
Fjalls“ sé fullkominn og rísi á „heitum stað“. En bið getur
orðið á því, meiri en hollt er, jafnskammt og fjársöfnun og
öðrum undirbúningi er komið. Þyrfti að finna ráð til bjargar,
meðan sú bið stendur.
O g r á ð i ð b 1 a s i r v i ð, ef eigi skortir hug og vilja að
nota það. Þrastalundur stendur auður átta rnánuði ársins, þann
tíma, er skóli mundi standa. Það er vandað hús og veglegt í
alla staði, með ágætum útbúnaði, flestu því, sem húsmæðra-
skóli þyrfti að nota. Þetta er á einum fegursta stað landsins.
Eigi mun standa á samkomulagi við eiganda hússins, um slíka
notkun þess.
Geta konur og æskumenn, er mál þetta snertir, horft að-
gerðalaus á þvílíkt tækifæri?
„Dansk Schweitzer".
Fyrir skömmu hafði Mjólkurbú Flóamanna osta og smjör,
er það framleiðir, til sýnis í búðagluggum í Reykjavík. Þar
voru margar tegundir osta, harla girnilegar, og var nafn letr-
að á hverja. Öll nöfnin voru erlend, og ein tegundin hét „Dansk
Schweitzer“. (Flóamenn hafa danskan mjólkurbússtjóra).
Hvernig ætli Þorsteinn Erlingsson hefði kveðið um íslenzka
bændur, sem liggja svo hundflatir fyrir baunverjanum, að þeir
þola honum bótalaust að kalla framleiðslu þeirra danska og
bjóða hana innan lands undir erlendum nöfnum?
Þetta er, því miður, ekki eina dæmi þess, að íslenzkar vör-
ur séu boðnar með erlendum nöfnum eða nafnskrípum á ís-
lenzkum markaði. Suinir kaupahéðnar og iðnaðarmenn snopp-
unga kaupendur með þessu um leið og þeir hiðja menn að
„efla innlendan iðnað“. Fáfræði er ásökun, en engin afsök-
un, í þessu efni.
„Ólíkt höfumst við að“.
Eg kom eitt sinn inn í veitingahús á Skansen i Stokkhólmi,
en þar má telja að sé þjóðernislegur helgistaður Svia. Húsið
var reist i sænskuin sveitastíl, og veitingasalurinn líktist tröll-
aukinni sænskri bóndastofu. Nokkrir menn léku þar á fiðlur,
sænsk þjóðlög einvörðungu. Meyjar í þjóðbúningum báru gest-
unum sænslcar veitingar. Allt bar þarna lirein merki sænskr-
ar menningar.
Þingvellir eru jijóðlcgur helgistaður íslendinga. Eg var þar
i haust og kom í Valhöll. Þar gefur fátt að lita, það er minni