Skinfaxi - 01.04.1947, Side 3
SIÍINFAXI
3
annast hana. Sparar það útgáfunni mikla vinnu og
innheimtukostnað.
Hitt er U.M.F.Í. nokkur vonbrigði, að útbreiðslu og
innheimtustarf Umf. hefur verið misjafnlega rækt,
og stendur fjárhagur Skinfaxa nú illa, og getur slikt
ekki gengið lil lengdar. Mörg félög hafa ekki sýnt
nægilegan dugnað við útbreiðsluna. I ýmsum fjöl-
mennum félögum eru óskiljanlega fáir kaupendur.
Einstaka félag liefur aldrei hirt um að senda neinn
áskriftarlista, né gera skil fyrir þau eintök, sem þeim
eru send handa væntanlegum áhrifendum og alltof
mörg draga óliæfilega lengi að senda greiðsluna ár
hvert. Mörg Umf. eiga þó óskylt mál við þessi. Vinna
þau ötullega að útbreiðslunni og greiða skilvislega.
Sem dæmi um það, sem hezt er gert, skal þess getið,
að Umf. Drengur i Kjós hefur frá upphafi staðið skil
á 51 kaupanda, og er enn að fjölga þeim, Umf. Svarf-
dæla á Dalvík á 40 kaupendum, Umf. Biskupstungna
32, og þannig mætli nefna ýmis fleiri ágæt dæmi um
myndarleg vinnubrögð fyrir Skinfaxa. Gerðu öll Umf.
skyldu sina á þennan liátt, myndi Skinfaxi vaxa
fljótlega frá því sem nú er, án þess að verð hans
hækkaði. Það eilt er líka samboðið Umf. Fyrir livern
einstakan áskrifanda er kr. 10.00 hreinir smámunir,
en með nógu öflugri útbreiðslu, getur slíkt gjald þó
gert stórt tímarit úr garði.
Efling Skinfaxa ætti að vera kjörorð. Umf. næstu
mánuðina. Hvert einasta Umf. ætti strax að líta i
eigin barm og atliuga, livort það hefur rækt skyldur
sínar við Skinfaxa. Hvort það hefur reynt til þraut-
ar að fjölga kaupendum hans. Hvort það hefur ann
azt innheimtu áskriftargjaldanna og sendir þau fgr-
ir 1. október ár hvert. Einnig er æskilegt, að sem flest
félög sendi Skinfaxa fréttir af störfum sínum og ein-
stakir ungmennafélagar greinar um áhugamál sin.
Þá eru bendingar um efnsival og annað, sem tíma-
1*