Skinfaxi - 01.04.1947, Qupperneq 34
34
SKINFAXI
Ef þú vilt, getur þú lijálpað mér, sagði kanverska
konan. Er ykkur ekki, sem þið heyrið bænarorð allra
þeirra, karla og kvenna, sem þjást vegna drykkju-
fýsnar sjálfra sín og ástvina sinna? Og gleymið ekki
heldur þeirri drykkjuhneigð, sem í blóðinu býr, þótt
enn liafi ekki vakin verið. Finnið þið ekki, hvílíkur
raunur það er að mega vita sig og sína örugga fyrir
áfenginu í návist ykkar eða freistaða af því? Skiljið
þið þá ekki, að bindindisfélögin eru fóstbræðralag
til verndar og líknar, þar sem mest þarf með. Þið
hafið rétt til að efast um einstök löggjafaratriði, en
þið megið aldrei efast um persónulega ábyrgð og per-
sónulega þýðingu ykkar sjálfra. Vertu trúr þeim von-
arneista, sem lifir í öskunni undir áfengisbölinu.
Lyftu djarflega blysi bindindishugsjónarinnar og
gleymdu aldrei orðunum: Blóð bróður þíns hrópar til
min af jörðinni. —- Ef þú vilt, getur þú hjálpað mér.
Verið þið öll sæl i góðum vilja og góðu starfi.
Ungmennafélagar!
Vinnið ötullega að ankinni útbreiðslu Skinfaxa. Árg. kostar
ltr. 10.00 Gjalddagi er 1. október. Þið, sem ekki hafið greitt
Skinfaxa fyrir árið 1946 eða eldri árganga, gerið strax skil
til stjórnar viðkomandi Umf. sem annast greiðsluna til U.M.F.Í.
Vcrum samtaka um eflingu Skinfaxa.
Ungmennaf élög!
Sendið Skinfaxa greinar um framkvæindir ykkar og félags-
störf. Látið myndir fylgja með, ef til eru.
Bréfaskipti við norskt æskufólk.
Margir norskir æskumenn bafa sent U.M.F.I. lieimilisföng
sín og óskað eftir því að komast í bréfaskipti við íslenzka
æskumenn. Voru mörg þessi heimilisföng, ásamt ýmsum upp-
lýsingum birt í 1. hefti Skinfaxa 1946 og viðbót í þessu licfti.
Það eru eindregin tilmæli U.M.F.f. að lcsendur Skinfaxa og
Umf. almennt vinni að því að taka þessurn tilmælum vinsam-
lcga og hefja bréfasambönd við frændur okkar í Noregi.