Skinfaxi - 01.04.1947, Qupperneq 27
SKINFAXI
27
in i iþróttum nieiri afrek en nokkru sinni áður, af-
rek, sem okkur, hinum rosknu, liefði verið langt um
megn, þegar við vorum ungir. í allri skipun sam-
komunnar, stjórn hennar og undirbúningi, kemur
fram elja og þróttur sterkrár og heilbrigðrar æsku.
A þessu vori og sumri iiafa verið unnin í íþróttum
afrek, sem ágæt munu talin á alþjóðamælikvarða.
Trú okkar virðist vera að sannast, að minnsta þjóðin
getur orðið hin mcsta, og hundrað þúsund geta boð-
ið út hundrað milljónum.
Nú munu nöldurseggirnir segja, að ekki sé alll
fengið með likamlegum afrekum. En ég trúi því, að
mikil afrek verða ekki unnin á neinu sviði, nema
með miklum sálarstyrk og andlegum þroska. Ég
gleðst af því í dag, að æskan er feðrum sínum fremri
um marga hluti. Ég hef aldrei verið sterkari i minni
barnatrú á framsókn alls, sem lifir og andann dregur.
Æskumenn! Fyrir fjörutíu árum reistum við ung-
mennafélögin á grunni, sem okkar feður liöfðu lagt.
Við byggðum ])au upp með trú og fórnfýsi. Nú liafið
þið tekið við. Byggið enn á grunni ykkar feðra, enn-
þá traustara, ennþá fegurra, cnnþá hærra. En um
fram allt: Munið það, þegar þið verðið rosknir og
ný æska tekur við af ykkur, að rétta lienni höndina
og treysta henni. Hún verður eflaust ykkur fremri á
margan hátt.
Jón Sigurðsson.