Skinfaxi - 01.04.1947, Side 54
54
SKiXFAXI
Félagsmál.
Umf. Reykjavíkur 5 ára.
Félagið minntist afmælisins jneð veglegu samsæti í Tjarnar-
lundi lö.marz í vetur, en stofn-
dagur l'élagsins er 19. apríl
1942. Þar fóru fram ræðuhöld,
söngur, afhending vcrðlauna
og ýmislegt fleira var til
skemmtunar. Aðalræðuna flutti
Ríkarður Jónsson myndhöggv-
ari fyrir minni Aðalsteins heit-
ins Sigmundsonar, er beitti sór
aðallega fyrir stofnun félags-
ins. Formaður Umf. Reykja-
víkur er Stéfán Runólfsson frá
Hólmi, og hefur liann verið
]>að síðan 1944 og sýnt frábær-
an dugnað i störfum sínum.
Hefur ])að undir forustu hans
sigrað margvíslega byrjunar-
örðugleika og hafið merkilcga
starfsemi fyrir æskuna í
Reykjavík og marga ung-
mennafélaga, sem hér dvelja
að vetrinum utan af lands-
hyggðinni. En slíkum félögum vill Umf. Reykjavíkur taka opn-
um örmum, og ættu Umf. utan Reykjavikur að notfæra sér
það rækilega, ])ví margir dvelja þar lengi, þótt þeir eigi licim-
ili annars staðar.
í tilefni af 5 ára afmælinu, hefur Umf. Reykjavíkur gefið út
myndarlegt félagsrit, 20 bls. í stóru broti, prýtt fjölda mynda.
Forsíðumynd er af Aðalst. Sigm. Greinar eru eftir Ingimar
Jóhannesson, Pál S. Pálsson, fyrsta formann félagsins, Pétur
Sigurðsson, Björn Sigfússon, Grím S. Norðdahl, Lárus Saló-
monsson, Stefán Runólfsson, Kristínu Jónsdóttur. Þá eru fréttir,
kvæði o. fl. Myndir eru m. a. af öllum þeim er setið hafa i
stjórn félagsins, íþróttakennuruin þess og íþróttafólki. Ritið
er félaginu til hins mesta sóma.