Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1947, Síða 31

Skinfaxi - 01.04.1947, Síða 31
SKINFAXI 31 segja jafnskjótt og þeir komast á bragðið, stjórnlaus- ir tóbaksvargar. Nú mun flestum koma saman nm ])að, að það sé ekki sjálfrátt, Iivað hverjum finnsl gott eða vont. Hitt er svo augljóst, að það er ekki nokkur manndómsraun af mér að bafna því, sem mér býður við, þó það taki á taugarnar, að neita sér um það, sem brennandi ástríða er til. En sumum mönnum er svo Iiátlað við vín, að þeir bafa ekkí lyst nema á litlu í einu, aðrir geta drukkið sem þeir vilja, en alltaf ástriðulaust, en þeir þriðju verða því sólgnari i vín, sem þeir drekka meira. Eg vildi verða síðastur manna til að vanmcta skap- styrk og viljaþrótt, en rökvilla sem þessi er mér við- urstyggð. Það mætti þá eins rekja það til andlegra yfirburða og æðri sáíarþroska, að sumir menn eru svo gerðir, að þeir gela borið í sér alla ævi bráðnæmar og banvænar sóttkveikjur, án þess að verða nokk- uru sinni misdægurt. En það er nú ekki litið þannig á, og það er t. d. verið að útrýma taugaveikinni hér á landi með því, að þessir sýkilberar hennar eru Iiafðir undir sérstakri vörzlu, Iivar sem þeir finnast. Þjóðarnauðsyn þykir réttlæta það, að svipta þá sjálf- sögðustu og bversdagslegustu mannréttindum. En á sýkilbera áfengisbölsins er litið sem sérstakar fyrir- myndir og æðri manngerð. Hættan stafar frá sýkilberunum. Bölið leggst á sjúklingana. Almenningsálitið getur ekki skapað bófdrykkju og svokallaða áfengismenningu, vegna þess, að nokkr- um hluta fólksins er ekki sjálfrátt, þegar ])að er far- ið að drekka. Það skiptir blátt áfram engu, bvað aðrir segja eða bvað þessum mönnum finnst sjálfum. Allt, sem gott er í þessum auðnuleysingjum, gerir uppreisn gegn drykkjufýsninni. Flestir ofdrykkjumenn, ef ekkí allir, munu beyja barða innri baráttu og þola miklar sálarkvalir, áður en þeir eru gjörfallnir ofdrykkju-

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.