Skinfaxi - 01.04.1947, Side 24
24
SKINFAXI
(^ón -SiigurÁí
'iion,
'bjzlafeffí:
Ungmennafélögin 40 ára.
(Rœða flutt á landsmóti U.M.F.f. a<5 Laugum 1946).
Fyrir fjörutíu árum
voru fyrstu ungmennafé-
lögin stofnuð, næstuin
samtímis í sveit og kaup-
stað. Stefnuskráin var
næstum samliljóða. Þetta
var engin tilviljun. Félög-
in komu eins og kölluð,
þegar fylling tímans var
komin. Ýmis félög á 19.
öld voru beinir fyrirrenn-
arar þeirra, en flesl höfðu
þau hagnýtara og fjár-
hagslegra markmið. Ung-
mennafélögin beittu sér meira inn á við, lil alhliða
manngildisþroska. Á þessum tímamótum vill einn
þeirra, sem var með frá upphafi, biðja æsku nútim-
ans að líta til baka.
Feður unglinganna, sem stofnuðu félögin, voru upp-
reisnarmenn gegn flestum lífskoðunum og venjum,
scm sígildar liöfðu þótt öldum saman. Kirkja, klerk-
ur, kaupmaður og konungur voru þeim ekki lengur
yfirvöld. Kotbóndinn viðurkenndi ekki lengur stór-
bóndann. Ilver fátæklingur álti metnað lil þess að
meta meira eigin, skynsemi en liefðbundnar venjur
og játningarrit horfinna kynslóða.
Andrúmsloft okkar, unglinganna á fyrsta tugi 20.
aldar, var gagnsýrt af fríhyggju og frelsisþrá 19. ald-
ar. Því fylgdi sú bjartsýni og heiðríkja, sem ennþá
Jón SigurSsson, Yztafelli.