Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 5
SKINFAXI
69
eru líka sýningar í sambandi við haustmót félaganna,
þar sem sýndar eru ýmsar afurðir, sem unga fólkið
hefur framleitt.
Höfuðmarkmið þessarar starfsemi er að skipa vinn-
unni þann sess, sem henni ber í hugum æskulýðsins,
örva vinnugleðina og efla virðingu unglinganna fyrir
daglegu störfunum. En einnig er tilgangurinn, að
binda æskulýðinn átthögunum hinum traustu bönd-
um ræktunar- og framleiðslustarfanna.
Ættjörðin þarfnast ekki stórra orða fyrst og fremst.
Við ungmennafélagar höfum efst á stefnuskrá okkar
að sameina æskulýðinn. Margt verður til þess að
sundra honum, sem og öðrum landslýð, í hópa, stéttir
og flokka, en það á að verða hið mikla sameiningar-
tákn okkar nú, að allir hefjist handa um skapandi og
lifandi starf. Drögum að hún fána vinnunnar, góðir
félagar. Starfið er ekki aðeins grundvöllur efnalegs
sjálfstæðis þjóðarinnar, heldur einnig undirstaða menn-
ingar hennar og sú heilsulind andleg og líkamleg, sem
æskulýðurinn má ekki án vera.
Ungmennafélagár, störfum í anda orðanna:
Island allt!
Skinfaxi.
Þeir, sem enn hafa ekki greitt árgang 1950 eða eldri árganga.
eru vinsamlega beðnir að gera bað strax til stjórnar ung-
mennafélagsins i bygg'ðarlagi sínu, sem sér uni innheimtuna.
Árgangurinn kostar kr. 10,00. Gjalddagi er 1. október.
Þeir, sem ekki eru áskrifendur innan ungmennafélaganna.
sendi áskriftargjaldið til innheimtunnar í pósthólf 406, Reykja-
vik. Þangað ber og að senda öll erindi varðandi afgreiðslu og
innheimtu Skinfaxa.