Skinfaxi - 01.11.1950, Síða 8
72
NK I.N'FAX!
Laugaland.
Samkvæmt eðli málsins er húsið rekið sem sjálfstætt
fyrirtæki og var fyrirkomulag á rekstri þess ákveðið
árið 1945. Húsið hefur fimm manna stjórn, eru 2 frá
ungmennafélaginu, 2 frá hreppsnefndinni og 1 frá kven-
félaginu. Stjórnin sér um allan rekstur hússins, við-
hald og reikningshald, svo og allt er húsið varðar.
Hér er ])á í stórum dráttum rakin saga félagsheim-
ilisins að Laugalandi, sú er varðar byggingu þess og
hið ytra form. Hitt verður aldrei til hlítar rakið, né í
letur fært, hvert átak það er í raun og veru, að byggja
hús, sem þetta, i fremur fámennu sveitarfélagi. En
með byggingu félagsheimilisins er brotið blað í sögu
ungmennafélagsins, þar eð öll aðstaða til félagslífs
hefur gjörbreytzt, J)ótt fámennið gjöri félagsstarfsemi
alla erfiðari og fábreyttari en ella myndi vera. En víst
er um það, að einmitt fyrir húsið og sundlaugina hefur
vaknað mikill íþróttaáhugi innan félagsins og má segja
að á því sviði hafi náðst dágóður árangur, miðáð við
strjála byggð og litla tilsögn. Næsta skrefið á þessum
vettvangi hlýtur að verða lagfæring á umhverfi húss-
ins, þannig að þar geti orðið a. m. k. æfingasvæði í
frjálsum íþróttum og er mikill áhugi fyrir að það