Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 9
SKINFAXl
73
geti orðið sem fyrst, og er nokkur undirbúningur haf-
inn i þá átt.
Fullyrða má, að það verður ekki til fjár metið,
hversu mikils virði það er fyrir allt félagslíf sveitar-
innar, í nútíð og framtíð, að hafa eignazt sitt félags-
heimili. Og enda þótt ýmislegt sé ógert ennþá í sam-
bandi við þessi mál, þá er það víst, að það stendur
til bóta og hægara að byggja ofan á, þegar traust
undirstaða er fundin. Og þess vildi ég óska, að sem
flest byggðarlög gætu eignazt sitt félagsheimili sem
fyrst, því það mun framtíðin meta að verðleikum,
verði þróunin ekki öfug í byggðasögu landsins á móti
þvi sem maður vonar. Við verðum að hlúa vel að
góðum framtíðarmálum, en það eru félagsheimilin í
sveitum landsins. Þar á æskan i nútið og framtíð að
verja tómstundum sínum eftir dagsins önn, ekki fyrst
og fremst með það í huga að setja met í einhverri
íþróttagrein, heldur með það sem æðsta markmið að
atgervi líkama og sálar geti fylgzt að.
1 sveitum landsins verður ávallt að vera að nema
land á einhverjnm sviðum ef ekki á að verða kyrr-
staða eða jafnvel afturför. Einn hlekkurinn i þeirri
þróunarkeðju eru félagsheimili — og ekki sá ómerk-
asti.