Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 23
SKINFAXI
87
Þorsteinn Eiríksson skólastjóri, Brautarholti. ’
Æskulýösmótið * Ærviku
Dagana 19.—25. júní s.l. blandaðist íslenzka, finnska
og danska, norsku og sænsku í lýðháskólunum i Inge-
sund, Arvika, Svíþjóð. Þar stóð þá yfir æskulýðsmót
ungmennafélaganna á Norðurlöndum.
Frá því 1924 hafa norsk, sænsk og dönsk ungmenna-
félög haldið slíkt mót, en nú fyrir nokkrum árum bæt-
ast svo finnsk og íslenzk ungmennafélög í hópinn.
Á móti þessu voru forystumenn ungmennafélaga
með stóra eða smáa hópa ungmennafélaga, hver frá
sínu landi. Þarna voru 4 Islendingar: Stefán Runólfs-
son, sem var fararstjórinn. Þorbjörg Bergþórsdóttir,
Jóakim Pálsson og undirritaður. Frá Danmörku 17,
Finnlandi 21, Noregi 5 (fengu ekki gjaldeyri) og frá
Svíþjóð um 20 fulltrúar.
Meginþorri þess fólks, sem æskulýðsvikuna sótti,
kunni aðeins sitt eigið móðurmál. Var þvi ekki að
undra þó illa gengu samræðurnar fyrstu dagana. En
„mikið má ef vel vill“ og er líða tók á vikuna fóru
málin að blandast og út kom hin kunna skandinaviska
með ýmsum tilbrigðum. Finnarnir fóru að rifja upp
það, sem þeir lærðu í barnaskólnum í sínu öðru móður-
starfsemi vorri og að sem flestir ungir menn læri nú
þessa fögru og gagnlegu iþrótt og týni henni ekki aftur.
Vér biðjum þess jafnframt, að áhugi manna á slysa-
vömum megi eflast um ókomin ár.
Drottinn! Gef þú oss að helga þér líf vort og störf.
Gef þú, að íþróttastarfsemi vor megi eflast og að bún
stefni jafnt að því að efla heilbrigði sálna vorra sem
hreysti likama vorra. Gef oss að minnast þess, að lík-
amir voi'ir eru musteri heilags anda, sem vér höfum
frá þér. Amen.