Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 29
SKINFAXI
93
undir stjórn Karls Ó. Runólfssonar. Sigurður Greips-
son formaður Skarphéðins lýsti því næst dagskrá móts-
ins og flutti ræðu um stofnun Skarphéðins og ágrip
um 40 ára starf. Það hélt fyi’sta iþróttamót sitt að
Þjórsártúni vorið 1910. Þar hafa mótin nær alltaf
verið haldin siðan.
Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi hélt síðan vígslu-
ræðu hins nýja iþróttavallar. Lýsti hann gerð vallar-
ins og undirbúningi. Iþróttavöllurinn hefur 400 m.
langar hlaupabrautir og er á allan hátt löglegur keppn-
isvöllur með mjög rúmgóðu áhorfendasvæði. Eftir er
að ganga frá sætum á honum.
Björn Björnsson sýslumaður Rangæinga flutti síðan
snjalla ræðu uin manngildishugsjónir Umf. og hlut-
verk þeirra fyrr og nú. Flutti hann Skarphéðni þakkir
héraðsins fyrir merkilegt menningarstarf í 40 ár. —
Vék hann verðskulduðum þakkarorðum til Sigurðar
Greipssonar fyrir óþreytandi og örugga forystu fyrir
velferðarmálum sambandsins, en hann hefur verið for-
maður þess næstum þrjá síðustu áratugina.
Karlakór Hreppamanna, undir stjórn Sigurðar
Agústssonar, Birtingaholti og Karlakór Biskupstungna
undir stjórn Þorsteins Sigurðssonar, Vatnsleysu
skemmtu með söng. Þegar ræðum og söng var lokið,
gekk fylking íþróttamanna, kvenna og karla, nokkuð
á annað hundrað, inn á íþróttavöllinn og heilsaði með
íslenzka fánanum. Var þetta glæsilegur hópur æsku-
manna og fögur sjón. Hófst síðan úrslit í þeim íþrótta-
greinum, sem eftir voru.
Bændaglíma hafði verið ákveðin með 72 þátttak-
endum. Fór hún fram á gamla íþróttavellinum. Gengu
glímumenn þangað fylktu liði. Mótsgestir höfðu áður
safnazt saman á áhorfendabekkina og biðu binna
óvenju mörgu glímumanna með eftirvæntingu. Var
öll brekkan þéttskipuð fólki og munu hafa verið þar
á fjórða þúsund manna.