Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 31
SKINFAXl
95
hópur og aldursmunur orðinn mikill á þeim elztu og
yngstu. Sig. Greipsson kynnti þá alla og minntist enn-
fremur annarra, sem unnið hafa glímuskjöldinn frá
upphafi. Tveir þeirra voru látnir, Páll Júniusson frá
Syðra-Seli og Jón Jónsson frá Laug.
Mesta athygli þeirra, er þarna komu fram, vöktu
tveir i’osknir bændur og vörpulegir að vallarsýn, þeir
Haraldur Einarsson bóndi í Kerlingadal, Mýrdal, sem
vann skjöldinn í fyrsta sinn 1910, og Magnús Gunnars-
son bóndi Ártúnum, Rangárvöllum, er var skjaldarhafi
litlu siðar.
Sigurður Greipsson sleit síðan þessu merkilega af-
mælismóti. Gerði grein i'yrir úrslitum og afhenti verð-
laun. Þakkaði síðan keppendum drengilegan leik og
hinum mikla mannfjölda prúðmannlega framkomu.
Stjórn Skarphéðins skipa, auk Sigurðar, Eyþór
Einarsson frá Gröf og Magnús Guðmundsson, Mykju-
nesi.
Yeglegt afmælishóf 14. október.
Þá minnstist Skarphéðinn afmælisins með veglegu hófi
i Selfossbíó 14. okt. og hófst það kl. 16,30. Þangað var
boðið öllum gömlum starfsmönnum og stjórnendum
sambandsins, iþróttamönnum frá afmælishól'inu í sum-
ar, nokkrum styrktarmönnum og auk þess átta mönn-
um frá liverju sambandsfélagi, auk nokkurra fyrir-
manna úr héraði. Á þriðja hundrað mun hafa sótt
samkomuna.
Ingimar Jóhannesson kennari rakti sögu sambands-
ins í langri og ítarlegri ræðu, en hann vinnur nú að
samningi hennar. Sigurður Greipsson formaður Skarp-
héðins rakti íþróttasögu sambandsins frá upphafi. Kom
hann víða við og voru endurminningar hans fjörugar
og skemmtilegar.
Þegar þessum tveimur aðalræðum var lokið, hófst
sameiginleg kaffidrykkja og var veitt af mikilli rausn.