Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1950, Side 42

Skinfaxi - 01.11.1950, Side 42
106 SKINFAXl 1. Iþróttamál. a) Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands falinn undir- búningur að næsta landsmóti U.M.F.Í. sem haldið verður að Eiðum vorið 1952 og forstaða mótsins í samráði við stjórn U.M.F.Í. b) Skorað á héraðssamböndin að gangast fyrir hópsýning- um kvenna og karla á héraðsmótum sínum, og námskeið- um fyrir dómara og starfsmenn móta, til þess að mót geti farið sem bezt og skjótast fram. d) Skorað á öll Umf. sem íþróttamannvirki eiga, að koma öruggu skipulagi á hirðingu og viðhald þeirra. e) Stjórn U.M.F.Í. falið að gera tillögur um: 1) flokkaskipt- ingu afreka til verðlauna, 2) afreksmerkjaskjöl U.M.F.Í. og leggja tillögurnar fyrir næsta samhandsráðsfund til samþykktar, enda hafi þær áður verið birtar í Skinfaxa, sambandsfélögunum til athugunar. f) Stjórn U.M.F.Í. falið að halda námskeið fyrir leiðbein- endur í þjóðdönsum, vikivökum og almennum dansi. b) Gerðar tillögur um iþróttagreinar þær, sem keppa skuli í á landsmótinu. Birtast þær i næsta Skinfaxa og ber þeim Umf.. er vilja gera breytingartillögur að hafa sent þær stjórn U.M.F.Í. fyrir næsta sambandsráðsfund, sem tekur endanlega ákvörðun um íþróttagreinarnar. 2. Skinfaxi. a) Að Skinfaxi skuli koma út þrisvar sinnum á ári. b) ítrekaðar fyrri áskoranir til héraðsþinganna, að þau hvetji Umf. til öflugrar útbreiðslu Skinfaxa og innheimtu áskrifta- gjalda hans. Ennfremur verði einstök Umf. livött til að senda honum gréinar um starfsemi sína. 3. Skemmtanalífið. a) Þeim tilmælum beint til héraðssambandanna, að þau at- hugi möguleika á því að lialda fræðslu- og skemmtivikur fyrir viðkomandi héruð með svipuðum hætti og Ung- mennasamband Austur-Húnvetninga hefur gert undanfarin ár á Blönduósi. b) Stjórn U.M.F.Í. falið að skipa þriggja manna nefnd, til þess að athuga, hvort unnt sé að fá til íslands finnskan þjóð- dansaflokk, sem sýndi á norræna æskulýðsrnótinu i Ar- vika, Sviþjóð, á siðastliðnu vori. c) Samþvkkt að fela stjórn U.M.F.Í. að veita stjórn Banda- lags islenzkra loikfélaga allt að kr. 1000.00 i styrk til þess

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.