Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 42
106
SKINFAXl
1. Iþróttamál.
a) Ungmenna- og íþróttasambandi Austurlands falinn undir-
búningur að næsta landsmóti U.M.F.Í. sem haldið verður
að Eiðum vorið 1952 og forstaða mótsins í samráði við
stjórn U.M.F.Í.
b) Skorað á héraðssamböndin að gangast fyrir hópsýning-
um kvenna og karla á héraðsmótum sínum, og námskeið-
um fyrir dómara og starfsmenn móta, til þess að mót
geti farið sem bezt og skjótast fram.
d) Skorað á öll Umf. sem íþróttamannvirki eiga, að koma
öruggu skipulagi á hirðingu og viðhald þeirra.
e) Stjórn U.M.F.Í. falið að gera tillögur um: 1) flokkaskipt-
ingu afreka til verðlauna, 2) afreksmerkjaskjöl U.M.F.Í.
og leggja tillögurnar fyrir næsta samhandsráðsfund til
samþykktar, enda hafi þær áður verið birtar í Skinfaxa,
sambandsfélögunum til athugunar.
f) Stjórn U.M.F.Í. falið að halda námskeið fyrir leiðbein-
endur í þjóðdönsum, vikivökum og almennum dansi.
b) Gerðar tillögur um iþróttagreinar þær, sem keppa skuli
í á landsmótinu. Birtast þær i næsta Skinfaxa og ber
þeim Umf.. er vilja gera breytingartillögur að hafa sent
þær stjórn U.M.F.Í. fyrir næsta sambandsráðsfund, sem
tekur endanlega ákvörðun um íþróttagreinarnar.
2. Skinfaxi.
a) Að Skinfaxi skuli koma út þrisvar sinnum á ári.
b) ítrekaðar fyrri áskoranir til héraðsþinganna, að þau hvetji
Umf. til öflugrar útbreiðslu Skinfaxa og innheimtu áskrifta-
gjalda hans. Ennfremur verði einstök Umf. livött til að
senda honum gréinar um starfsemi sína.
3. Skemmtanalífið.
a) Þeim tilmælum beint til héraðssambandanna, að þau at-
hugi möguleika á því að lialda fræðslu- og skemmtivikur
fyrir viðkomandi héruð með svipuðum hætti og Ung-
mennasamband Austur-Húnvetninga hefur gert undanfarin
ár á Blönduósi.
b) Stjórn U.M.F.Í. falið að skipa þriggja manna nefnd, til þess
að athuga, hvort unnt sé að fá til íslands finnskan þjóð-
dansaflokk, sem sýndi á norræna æskulýðsrnótinu i Ar-
vika, Sviþjóð, á siðastliðnu vori.
c) Samþvkkt að fela stjórn U.M.F.Í. að veita stjórn Banda-
lags islenzkra loikfélaga allt að kr. 1000.00 i styrk til þess