Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 48
SKINFAXI
112
Sigurður Ólafsson frá Kárastöðum:
Ungmennasamband Skagafjarðar
fjörutíu ára
Aðfararorð.
Þegar stjórn íslands fluttist inn í landið 1903, vaknaði ný
frelsishreyfing meðal alþjóðar, sem miðaði að því að vinna að
eflingu tands og lýðs á sem flestum sviðum. Nœstu ár barst
ungmennahreyfingin norska til landsins sem kunnugt er, og
var vel fagnað af fjölda œskufólks, og einnig studdu margir
eldri einstaklingar þessa æskulýðshreyfingu með réttum skiln-
ingi.
i Skagafirði hafði þá starfað
um skeið bændaskólinn að Hól-
um i Hjaltadal, með ungum og
ágætum áhugamanni, Sigurði
skólastjóra Sigurðssyni, er síðar
varð búnaðarmálastjóri. Við
Hólaskóla voru þá starfandi á
vetrum málfundafélög meðal
skólasveina; undir forustu skóla-
stjórans, er tók virkan þátt i þeim
féhtgsskap. Þegar nemendur skól-
itns fóru aftur að starfa heima
í sínum átthögum, höfðu þeir oft
löngun til þess að fá annað æsku-
fólk í félagsskap, er starfaði á
svipuðum grundvelli og þeim, er
máifundafélög skólans hafði liaft,
og voru nokkur þessara félaga
stofnuð og starfrækt um Skagafjörð sem undanfari ungmenna-
félaganna og breyttust siðar í regluleg ungmennafélög. Einnig
voru nokkur bindindisfélög starfandi í héraðinu er síðar urðu
ungmennafélög.
í innri hluta Hofshrepps — um Óslandshlíð — var stofnað
bindindisfélag 12. febr. 1898, og starfaði það á svipuðum grund-
▼elli og æskulýðsfélögin, en aðalverkefni þess þá var, að vinna
að útrýmingu tóbaks- og áfengisnautnar á félagssvæðihu. Var
félagið nefnt „Geisii“, það breyttist síðar í ungmennafélag, og
gekk í samband félaganna, og er nú elzta stofnfélag þar. I
Lýtingsstaðahreppi var starfandi málfundafélagið „Framför“.
Guðjón Ingimundarson,
núv. form.