Skinfaxi - 01.11.1950, Síða 59
SKINFAXI
123
limf. Austri, Eskifirði, 10 ára
Þann 2. jan. s.l. var Umi'.
Austri á Eskifirði 10 ára.
AS vísu er ungmennafélags-
skapurinn á staðnum tæp-
um tveim árum eldri, þvi
Austri var stofnaður upp úr
öSru félagi, Umf. EskifjarS-
ar, sem stofnaS var 9. okt.
1938. Aðalhvatamenn þeirr-
ar félagsstofnunar voru
tveir af kennurum barna-
skólans, þeir Sigurbjörn
Ketilsson, nú skólastjóri í
Ytri-Njarðvík og undirrit-
aSur. Umf. EskifjarSar var
aldrei fjölmennt, en þó
iagði það grundvöll að
iþróttastarfi, keypti m. a.
skiði og leigði þau félög-
unum gegn vægu gjaldi. Tók
það einnig á dagskrá bygg-
ingu félagsheimilis og sundlaugar, þó ekkert væri liægt að
framkvæma þann stutta tíma, sem það starfaði. Haustið 1939
bættust félaginu nýir starfskraftar, þar á meðal Skúli Þorsteins-
son, sem þá varð skólastjóri á Eskifirði, og urðu nú þáttaskil
í félagsstarfinu. Hvatti Skúli til þess, að félagið gengi í U.M.F.Í.
svo það gæti notið réttinda þar og ýmissa hlunninda.
Á aðalfundi 12. jan. 1940 var samþykkt, að félagið gengi í
U.M.F.f. og jafnframt yrði breytt nafni félagsins og lögum til
samræmis við lög U.M.F.Í. Kosin var nefnd til að undirbúa
þessar breytingar á næsta fundi. Þann 27. jan. 1940 var svo
haldinn síðasti fundur í Umf. lískifjarðar. Þar kom frani sú
tillaga, að hið nýja félag fengi nafnið Austri, og var það
samþykkt i einu hljóði. Fyrsti formaður Umf. Austra var Skúli
Þorsteinsson. Á þessum fundi var yngra fólk tekið í félagið,
allt niður i 12 ára aldur.
Hófst nú allfjörugt félagslif, sem stóð með blóma þennan
vetur og hefur æ síðan verið tiiluvert starfað í umf. Austra,
Skúli Þorsteinsson