Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 60
124
SKINFAXI
þó á ýmsu hafi gengið þar eins og i öilum félögum, sem starfa
að menningar og íþróttamálum.
í þessu greinarkorni verður ekki rakin ýtarlega starfssaga
Austra þessi 10 ár, aðeins stiklað á stóru til að minna á fé-
lagið og bókfesta eitthvað lirafl úr sögu þess þessi ór. Félagið
gerðist brátt athafnamikið íþróttaféiag. Fyrsti íþróttakennari
félagsins, vorið 1940, varð Bóas Emilsson. Næsti íþróttakenn-
ari þess var Guttormur Sigurbjörnsson, og munu þessir menn
hafa kennt mest hjá félaginu, en fjölmargir sendikennarar
hafa kennt hjá því tíma og tíma. Kennsla hefur farið fram í
flestum iþróttagreinum, em hægt var að stunda á staðnum,
svo sem: knattspyrnu, handknattleik, leikfimi, skíðagöngu og
frjólsum iþróttum.
Árangur af þessu mikla íþróttastarfi er nokkur sýnilegur.
íþróttafólk Umf. Austra hefur oft staðið sig með prýði á iþrótta-
mótum U. 1. A.
Knattspyrnuflokkur Austra vann til eignar fyrsta knatt-
spyrnubikar U. í. A., vann hann 5 sinnum alls og þrisvar í röð.
í handknattleik og frjálsum íþróttum hafa Austrafélagar líka
staðið sig vel. Mest er þó um það vert að íþróttastarfið hefur
orðið lyftistöng fyrir félagið og ýtt undir framkvæmdir, sem
eiga eftir að verða félaginu og byggðarlaginu að gagni, en það
er bygging íþróttavallár og félagsheimilis, hvorttveggja er enn
i smíðum, en vel á veg komið. Vallargerðin hefur tafizt vegna
skorts á girðingarefni. Upphleðslur, sáning og góðursetning
er þar næsti áfangi, en að því loknu verður iþróttasvæði Umf.
Austra fagur hlettur, með Bleiksárfossa að baki. Það er draum-
ur okkar ennþá, en liann ó vissulega eftir að rætast.
Félagsheimilið er byggt að mestu úr gömlu verzlunarhúsi,
hinni gömlu sölubúð Tuliniusar, sem upphaflega var félags-
hús bindindismanna um aldamót. Með viðbyggingum verður
hús þetta myndarlegt fullgert og aðstaða góð til hverskonar
samkomuhalds og íþróttaiðkana. Húsið var tekið í notkun í
marz s.l. og m. a. rekur Umf. Austri þar kvikmyndasýningar,
sem eiga að standa að nokkru undir félagsheimilinu í fram-
tíðinni.
Til beggja þessara framkvæmda nýtur félagið velvilja og
stuðnings sveitastjórnar, iþróttasjóðs og félagsheimilasjóðs.
Umf. Austri hefur öll þessi ár haft með höndum ýmsa aðra
menningarstarfsemi en íþróltir. Sjónleikastarfsemi hefur alltaf
verið nokkur og jafnvel leikið á öðrum fjörðum í grennd.
Námsflokkar voru starfræktir í félaginu i nokkra vetur og nú-
verandi lestrarfélag þorpsins er stofnað fyrir forgöngu þess.