Skinfaxi - 01.11.1950, Side 67
SKINFAXI
131
þindarinnar, en einnig t. d. liúðarinnar, svo við ekki nefn-
um aðra hluta, sem taka þátt í þeirri athöfn, sem við net'num
öndun, heldur alls líkamans. 1 sundurgreiningarstefnu vorri
kennum vér öndun ekki með fyrirskipuðum öndunarhreyfing-
um eða með skilgreiningum á hinum ýmsu atriðum hennar,
heldur með þvi að ávinna einstaklingum rétta öndun með
hreyfingum, sem ná til alls líkamans. 1 þessu tilfelli geta seil-
ingarœfingar hinna sænsku fimleika og einnig vinnuaðferðir
Nielsar Buck veitt mikla aðstoð til þess að þroska hrygginn
og auka þanþol bolsins. Sérstakar öndunaræfingar eiga rétt
á sér innan læknisfræðilegra aðgerða, og hvað söng viðvíkur
eru þær nauðsynlegar.
b) Bolæfingar:
Ling benti á, hversu setur vorar nú á tímum væru skaðleg-
ar, og af íhugunum hans komu hinar kerfisbundnu bolæíing-
ar i notkun. Fimleikakennarinn verður ávallt að hafa það
efst i huga að þroska og styrkja bolvöðvana. Hvað þessu við-
víkur fylgjum vér hinni sænsku kenningu, en í framkvæmd
víkjum vér inn á tvær brautir til þess að auka hreyfanleika
hryggjarins; nauðsyn þessa sýndi oss i fyrsta lagi K. A. Knud-
sen og Klapp, og i öðru lagi reynsla vor af hinum dans-
kenndu fimleikum.
Ef ég bæti við sænsku fimleikana hinum happadrjúga árangri
af þroskandi vöðvateygjum, eins og Niels Buck liefur æft þær
fyrir allan líkamann, þá hef ég æfingaskrá bolæfingakerfis-
ins, sem nær yfir allt það, sem snertir bolinn, sem er aðset-
ursstaður aðallíffæranna.
Þessi æfingatilhögun krefst þess, að vér höfum fyrst og
fremst innt af höndum aðalskyldu vora gagnvart liffæraþrosk-
anum, styrking hjartans, með æfingum, sem vaxa að erfiði
stig af stigi.
Lýsing æfinganna er kafli fyrir sig, og ég mun síðar ræða
um sameiginlegar reglur til uppbyggingar. Æfingatafla vor liti
þá þannig út:
1) Hlaup til þess að styrkja hjartað.
2) Bolæfingar, sem teygja og þroska hreyfanleika hryggjar-
ins. Þetta leiðir svo til:
3) Æfinga fyrir húðina, og
4) Heildarhreyfinga. Og inn i þær falla fjögur atriði vöðva-
þjálfunarinnar: Teygja, styrkur, snerpa, mýkt.
Beinum vér athyglinni aftur að bolæfingunum, þá gæti um-
ræðuefnið snúizt um aðra þrætuspurningu, þ. e. a. s. valið
9*