Skinfaxi - 01.11.1950, Qupperneq 86
150
SKINFAXI
Sund- og knattspyrnumót U.I.A. var haldið á Seyðisfirði 24.
og 25. júní. í sundkeppninni tóku þátt 4 ungmenna- og íþrótta-
félög og hlutu þessi stig: Þróttur, Neskaupstað 56. Huginn,
Seyðisfirði, 23. Samyrkjafélag Eiðaþinghár 6 og Umf. Austri,
Eskifirði 3.
Sigurvegari í knattspyrnunni varð Huginn með 5 stigum.
Austri hlaut 4 stig. Þróttur 2 og Umf. Leiknir, Búðum, 1.
Mótið var fjölsótt.
íþróttamót Vöku og Samhygðar í Flóa var haldið á Lofts-
staðaflötum 16. júli. Umf. Vaka vann mótið með 37 stigum.
Umf. Samhygð hlaut 26 stig. Gisli Guðmundsson, Umf. Vöku,
hlaut flest stig einstaklinga, 12 alls.
íþróttamót Umf. Biskupstungna, Hvatar Grímsnesi og Laug-
dæla var haldið að Borg í Grímsnesi 30. júli. Umf. Hvöt vann
mótið ineð 29 stigum. Umf. Biskupstungna hlaut 26 stig og
Umf. Laugdæla 5 stig. Oddur Sveinbjörnsson, Umf. Hvöt, vann
nú til fullrar eignar Hvatarbikarinn. Hann er veittur fyrir
bezt afrek mótsins. Það var þristökk Odds, 13.91 m. er gefur
772 stig.
íþróttamót Hvatar í Grímsnesi og vígsla íþróttavallarins að
Borg fór fram 20. ágúst. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi
hélt ræðu. íþróttakeppni var háð milli þriggja Umf. fyrir ofan
Hvítá og þriggja fyrir sunnan. Sunnanmenn báru sigur úr
býtum.
íþróttamót U.M.S. Skagafjarðar og U.M.S. Eyjafjarðar
var haldið á Sauðárkróki 27. ágúst. Skagfirðingar hlutu 61
stig en Eyfirðingar 59. Af einstaklingum hlutu flest stig Árni
Guðnumdsson 21% og Gísli Sölvason 11%, báðir Skagfirð-
ingar.
Umf. í Holtum og Landsveit héldu íþróttamót 6. ágúst. Umf.
Ingólfur sigraði með 85 stigum.
U.M-S. Dalamanna og Stúkan Sóley úr Reykjavik héldu í-
þróttamót að Sælingsdalslaug (sundkeppni) og Nesodda (frjáls-
ar íþróttir) 4. og 5. ágúst. Sóley vann mótið með 117 stigum.
U.M.S. Dalamanna hlaut 101 Hjörtur Þórarinsson íþróttakenn-
ari frá Reykhólum stjórnaði mótinu.
Umf. Selfoss og Umf. Keflvíkinga kepptu á Selfossi 27. ágúst.
Keflvíkingar sigruðu, hlutu 11298 stig n Selfoss 10884 stig. Þetta
er í annað sinn, sem þessi keppni fer fram. f fyrra skiptið
sigraði Selfoss.
Frjálsíþróttamót Suðurnesja fór fram í Keflavík 8.—10.
ágúst. Þessi félög tóku þátt í mótinu og hlutu eftirgreind stig:
Umf. Keflavíkur 116, Umf. Njarðvikur 38, Garðar, Gerðum 6.