Skinfaxi - 01.11.1950, Blaðsíða 88
152
SKINFAXI
Hástökk: Sigurður Friðfinnsson (FH.) 1.75 m.
Langstökk: Torfi Bryngeisson (KR.) 7.07 m. Hann vann
einnig stangarstökkið (4.15 m.).
Þrístökk: Kristleifur Magnússon (IBV.) 13.95 m.
Hástökk kvenna: Guðlaug Guðjónsdóttir (Hörður ísaf.) 1.25
m.
Spjótkast: Jóel Sigurðsson (ÍR.) 61.46 m.
Kúluvarp: Gunnar Huseby (KR.) 15.96 m. Ilann vann einn-
ig kringlukastið (47.29 m.).
Sleggjukast: Þórður Sigurðsson (KR.) 43.02 m.
Kúluvarp kvenna: Guðný Steingrímsdóttir (U.M.S.IÍ.) 9.65 m.
Kringlukast kvenna: Ruth Jónsson (Umf. Hrunamanna) 33.03
m.
Hér að framan eru þá taldir upp íslandsmeistarar 1950 i
hinum ýmsu iþróttagreinum. 10 íþróttamenn, sem bezt stóðu
sig á þessu móti tóku svo síðar í mánuðinum þátt i Evrópu-
meistaramótinu í Briissel og gátu sér þar góðan orðstír. Tveir
þeirra, Gunnar Huseby og Torfi Bryngeirsson urðu Evrópn-
meistarar í kúluvarpi og langstökki.
FRA FELAG88TARFIIMU
Hér verða rakin nokkur atriði úr skýrslum félaganna árið
1949. Mörg störf eru sameiginieg i flestum skýrslum þeirra
t. d. málfundir, iþróttakennsla, þátttaka í margvíslegum i-
þróttamótum, ferðalög, skemmtanahald, söngiðkun, leikrita-
flutningur, fjáröflun til ýmissa framkvæmda, einkum sam-
komuhúsa og íþróttamannvirkja. Þeirra starfa verður ekki
sérstaklega getið liér, heldur hinna, sem nokkuð eru frá-
brugðin hinum venjulegu viðfangsefnum Umf.
Umf. Afturelding, Mosfellssveit, stendur að byggingu mynd-
arlegs félagsheimilis með hreppnum og fleiri félögum i sveit-
inni. Hefur félagið lagt fram fé og sjálfboðavinnu. Vinnur
auk þess að íþróttavelli. Hafði marga íþróttakennara á árinu.
Umf. Dagrenning, Lundareykjadal, rekur myndarlegt bóka-
safn með 1660 bindum. Metið til brunabóta á kr. 12000.00. Er
að byggja félagsheimili hjá sundlaug félagsins í Brautarholti.
Kostar félagsheimilið nú kr. 120 þús. en sundlaugin kr. 118
þús.
Umf. Reykdæla, Reykholtsdal, gróðursetti 600 birkiplöntur
í skógræktarreit félagsins. Lék Mann og konu.