Skinfaxi - 01.11.1950, Síða 89
SKINFAXI
153
Umf. Brúin, Hálsasveit, rekur bókasafn með 1012 bindum og
jók safniö um 44 bindi á árinu.
Umf. Snæfell, Stykkishólmi, iðkar mikið badminton og keppti
á landsmóti í þeirri íþróttagrein í Reykjavík. Þá er æfður
handknattleikur kvenna og keppt á móti í Vestmannaeyjum
og sigraði i handknattleik á landsmóti U.M.F.Í.
Umf. Barðstrendinga, Barðaströnd, vinnur að sundlaugar-
byggingu.
Umf.Vorblóm, Ingjaldssandi, gefur út handritað blað, sem
„Ingjaldur“ nefnist. Iíom það út nokkrum sinnum.
íþróttafélagið Grettir, Flateyri, hefur eignazt sundlaugina
á Flateyri og gert á henni miklar endurbætur og sér fram-
vegis um rekstur hennar. Lék Pilt og stúlku og Karlinn i kass-
anum, bæði heima og i næstu kauptúnum.
Umf. Reynir, Árskógsströnd, vinnur að íþróttavallargerð og
lagði fram mikla sjálboðavinnu við trjáræktarreit félagsins.
Gefur út liandritað blað, sem lesið er á fundum félagsins.
Umf. 'Svarfdæla, Dalvík, lék í samvinnu við Leikfélag Dal-
víkur Hreppstjórann á Hraunhamri. Minntist veglega 40 ára
afmælis félagsins. Hélt 54 kvikmyndasýningar. Gróðursetti
500 birkiplöntur í gróðurreit félagsins. Gefur út handritað blað.
sem Vekjari nefnist og lesið er upp á fundum félagsins.
Umf. Máni, Nesjum, liefur nýlega hafið byggingu félags-
heimilis.
Umf. Valur,'Mýrum, lék Hreppsstjórann á Hraunliamri.
Umf. Vísir, Suðursveit, lék Orustuna á Hálogalandi og sýndi
tvisvar í Höfn í Hornafirði.
Umf. Kjartan Ólafsson, Mýrdal, á fallegan trjáreit um 1200
m2 að stærð. Var lokið við að planta í hann og allmikið unnið
við hann að öðru leyti.
Umf. Samhygð, Gaulverjabæjarhreppi, lauk við byggingu
Félagslundar. Kostnaður varð um kr. 305 þús. Ilúsið vígt með
viðhöfn. Félagið á þrjá trjáræktarreiti, þar sem plöntur eru
aldar upp og síðan gróðursettar við Félagsund. Byggir í-
þróttavöll. Gefur út handritað blað.
Umf. Eyrarbakka, Eyrarbakka, á bókasafn með 2000 bind-
uum. Iðkar vikivaka og sýnir á samkomum. Innan félagsins
stárfar taflflokkur, sem keniur saman vikulega framan af vetri.
Umf. Baldur, Hraungerðishreppi, hélt námskeið í dansi o'í
söng við ágæta þátttöku. Taflflokkur starfar í félaginu og
keppti hann við taflfélag á Stokkseyri. Gróðursetti 200 plöntur
i trjáreit sinn.
Umf. Gnúpverja, Gnúpverjahreppi, gróðursetti allmargar