Skinfaxi - 01.07.1951, Síða 10
58
SKINFAXI
Orkuverin.
Þær samveitur, sem þegar eru komnar í sveitum,
eru aðallega tengdar orkuvenun við þessar ár: Sog,
Laxá og Andakíl. Hafnar eru nú stórvirkjanir við
Sog og Laxá. Er áformað að virkja til viðbótar í Soginu
32 þús. kw og í Laxá 8 þús. kw. Áður hafði verið
virkjað í Soginu 14,5 þús. klw, en til viðbótar hafði
það orkuveitusvæði gömlu Elliðaárstöðina, sem gaf 3,3
þús. klw og eimtúrbínustöðina við Elliðaá sem fram-
leiðir 7,5 þús. kw. Orkan á Sogssvæðinu meir en tvö-
faldast því við nýju virkjunina. Laxá var áður virkjuð
í 4,4 þús. kw, svo þar verður orkan 12,4 þús. kw.
Andakílsvirkjunin gefur 3,5 þús kw. Gönguskarðsá
við Sauðárkrók 1 þús. kw og Skeiðsfoss, sem enn
er aðeins fyrir Siglufjörð, gefur 1,8 þús. kw. 1 fram-
tíðinni verða þessi orkuver tengd saman og nýjum
bætt við, eftir því sem ástæða þykir til. Skapar slíkt
verulegt rekstraröryggi.
Heimildarlög hafa verið sett til þess að byggja eftir-
talin orkuver: Fossá í Ólafsvík, Fossá í Bolungavík,
Þyrilsvallavötn í Steingrímsfirði, Laxá í A.-Hún. og
Grímsá í Skriðdal, S.-Múl. Líklegt er, að sumar þessar
virkjanir verði framkvæmdar á næstu árum.
Lýsing1 á samveitum.
Samveitunum er þannig háttað, að frá orkuverunum
Frá Sogsvirkjuninni.
Myndirnar hér á móti, talið frá vinstri. Efsta röð: 1. Aðrennsl-
isæðarnar að aflstöðinni. 2. Onnur rafmagnsvélin af tveimur
fyrstu vélasamstæðunum er tóku til starfa i okt. ’37. 3. Afl-
stöðin, inntakshluti stiflunnar og aðrennslisæðar. —Miðröð:
4. Séð til Ljósafoss frá fhiðunum ofanvert við írafoss. 5. Stífl-
an yfir Sogið og aflstöðin. — Neðsta röð: 6. Vesturhluti stífl-
unnar með yfirfalli og botnrásum. 7. Yfirlit yfir stöð og
stíflu, t. v. botnlokuhús, t. h. inntakslokuhús. 8. Stjórnrúm
stöðvarinnar. (Mælar, stýritæki á vélum og rofum).