Skinfaxi - 01.07.1951, Blaðsíða 14
62
SKINFAXI
Héruð, sem fengið hafa rafmagn.
Frá Soginu hafa þessir hreppar á Suðurlandsundir-
lendinu fengið rafmagn, eða eru í þann mund að fá
það: ölfusið nær allt, Sandvíkur- og Hraungerðis-
hreppur að mestu leyti, helmingur Fljótshlíðar, Þykkvi-
bær, nokkrir bæir í Holtum og á Rangárvöllum, auk
allra þorpanna. 1 sumar verður væntanlega lokið við
Fljótshlíðina að Hliðarendakoti og byggð lína frá Sel-
fossi að Gaulverjabæ, sem tekur til 22 býla.
Sunnan heiðar hefur verið lögð lína til byggðarinnar
á Suðurnesjum um Mosfellssveit og upp á Kjalames.
Frá Andakílsá er veitan komin til 68 býla í Borgar-
firði og ráðgerð veita upp i Reykholtsdal í sumar og
nær hún til 30 býla.
Frá Gönguskarðsá er veitan komin í Glaiunbæ og
ráðgerð um byggðina til Varmahlíðar.
Frá Laxá er komin veita til Húsavikur, til nokkurra
bæja i Aðaldal, um Svalbarðsströnd og til Hjalteyrar.
1 sumar er ráðgerð veita um mikinn bluta Aðaldals.
Um Egilsstaðahverfi á Völlum hefur verið gerð veita,
sem fyrst um sinn fær orku frá mótorstöð.
Hér að framan eru þá taldar þær héraðsveitur ríkis-
ins, sem byggðar eru og gert er ráð fyrir að byggja
í sumar.
Hvemig' fjárins er aflað.
Það er erfiðast að yfirstiga þann mikla kostnað, sem
því er samfara að leiða rafmagn um dreifbýli landsins.
Styrkþörfin á einstaka sveitasveitur er venjulegast
75—90%, en gert er svo ráð fyrir, að veiturnar standi
undir því, sem eflir er. Samkvæmt raforkulögunum
leggur ríkissjóður fram % styrkþarfarinnar, en
greiðist úr héraði.
Samkvæmt 27 gr. raforkulaganna hafa margar sýslur
sett reglugerðir um, hvernig greiðslu héraðanna skuli
háttað. Þær eru flestar samhljóða og gera ráð fyrir, að