Skinfaxi - 01.07.1951, Síða 26
74
SKINFAXI
ár. Heimsstyrjöldin gerði það að verkum, að Iaun hækkuðu,
en tækifæri voru fá til að eyða peningum. Þessi svikavel-
gengni helzt, þótt úr henni dragi nokkuð, því Bretar veita
þangað miklu fé til þess að byggja upp mannvirki, sem skemmd-
ust í hinum 3000 loftárásum, er óvinirnir gerðu á eyna í stríð-
inu. Mest af matvælum er innflutt, því akrar á eynni eru
aðeins fáir tugir hektara. Mjög lítið af nauðsynjavörum er
framleitt heima fyrir, bæði vegna vöntunar á hráefnum og
eins af vatnsskorti. Maltabúar lifa í rauninni á ósýnilegum
útflutningi, vinnuafli, sem greitt er fyrir með stríðum straum-
um af brezkum peningum, vegna aðseturs landhers, flughers
og flota. Þannig greiðir flotamálastjórnin brezka allan kostn-
að af höfninni og hafnarframkvæmdum, en við hana vinna
10 þús. verkamenn. Innlend framleiðslu- og iðnfyrirtæki sjá
20 þús. mönnum fyrir vinnu við ræktun grænmetis, vefnað,
leðurvörugerð og þess háttar. Fiskveiðar eru og mikið stund-
aðar.
Mikil breyting hefur orðið á klæðaburði Maltabúans síðustu
tuttugu og fimm árin. f myndabókum og á frimerkjum má sjá
kvenbúninginn, eins og hann var. Konurnar klæddust dökk-
um fötum, og höfuðbúnaðurinn var eins konar faldur, sem
mest líktist kappa eða slá og þakti allt höfuðið. Faldetta nefn-
ist hann. Að framan er hann stinnur, og því minnir hann á
þanið segl í vindi. En sífellt færri
konur bera nú þennan höfuðbún-
að. Og ungu stúlkurnar fylgjast
álíka vel með tízkunni og stúlkur
annarra landa.
í borginni Valetta er höll land-
stjórans. Einu sinni var hún aðset-
ur forráðamanna riddara Jóhann-
esarreglunnar. Þar er lika Jóhann-
esarkirkjan, annað vitnið um stór-
glæsilegan byggingarstíl. í henni
eru mörg mjög merkileg listaverk,
þar á meðal heimsfrægt listofið
teppi með myndum úr lífssögu
Krists. Þar eru og bústaðir ridd-
aranna, nú verzlanir og skrifstof-
ur stjórnarinnar. Þessar miklu,
gömlu byggingar, sem allar eru
listaverk út af fyrir sig, voru eitt sinn heimkynni hinna
hraustu Jóhannesarriddara, eftir að þeir höfðu verið hraktir
Elísabet Englandsprins-
essa talar við innlenda
konu i þjóðbúningi.