Skinfaxi - 01.07.1951, Side 32
80
SKINFAXI
september 1949, og var öll steypa fengið löguð frá
Steypustöðinni h.f. Húsið var orðið fokhelt um vorið
1950, og tekið til notkunar, eins og fyrr segir, hinn
17. marz s.l.
Húsið er að grunnfleti 607,8 m2, og er í tveim hlið-
stæðum álmum, með millibyggingu.
I millibyggingunni er anddyri, móti suðri, 8,5 m2,
forstofa 60 m2, og veitingasalur 80 m2.
1 vesturálmunni er samkomusalur, 146 m2, og við
norðurenda hans er leiksvið 65 m2. 1 kjallara undir
leiksviðinu eru búningsherbergi og böð, en við suð-
urenda salarins er áhaldageymsla, 14,2 m2. og uppi
yfir henni kvikmyndasýningarklefi.
1 austurálmunni eru 2 hæðir. Á neðri hæðinni er
eldhús og búr 42 m2, vinnustofa 23 m2, fatageymsla
10 m2 og íbúð húsvarðar (3 herbergi og bað) 58 m2.
Á efri hæð eru fundasalur 23 m2, 4 félagsherbergi
11 m2 hvert, og bókasafnsherbergi, 45 m2.
Kjallari er undir nokkrum hluta austurálmunnar,
og er ætlaður fyrir geymslur.
Áætlaður kostnaður byggingarinnar var kr. 1.300,-
000,00, og var sú áætlun gerð fyrir gengisbreytingu.
Kostnaður við húsið er nú orðinn kr. 1,300.000,00,
en geta má þess, að eftir er að mála og dúkleggja efri
hæð austurálmunar og íbúð húsvarðar.
Má kallast vel að verið að fara ekki meira fram úr
áætlun, með þeim hækkunum, sem orðið hafa á öll-
um byggingarvörum á þessu tímabili.
Byggingarkostnaður hefur fram að þessu skipzt
þannig á aðila, er að byggingunni standa:
Dr sveitarsjóði kr. 745.000,00. Frá Umf. „Aftur-
elding“ kr. 23.000,00 og frá Kvenfélagi Lágafellssókn-
ar kr. 12.000,00. Á móti þessu kemur svo framlag úr
félagsheimilasjóði, kr. 520.000,00.
Að lokum vil ég svo geta þess, að ekkert hefur verið
til sparað að gera félagsheimilið vel úr garði, bæði