Skinfaxi - 01.07.1951, Blaðsíða 44
SKINFAXI
92
Skjöl þessi hafa nú verið fullgerð og öll árituð nöfnuni
þeirra, sem þátt tóku í Hveragerðismótinu. Þau liafa fyrir
nokkru verið send héraðssamböndunum til dreifingar. Skjalið
verður áreiðanlega mörgum kærkomin minning um þátttökuna
í mótinu.
Stefán Jónsson liefur teiknað það af mikilli smekkvisi. Efst
eru birkilauf, þá áletrunin: Landsmót U.M.F.Í. í boga og merki
ungmennafélaganna, bláhviti fáninn. Undir þessari skreyt-
ingu er mynd frá landsmótinu, nokkrar prentaðar setningar
til skýringar og að lokum undirskrift stjórnar U.M.F.Í. Skjal-
ið er prentað í þremur litum.
Veðmálastarfsemi.
Undanfarin ár befur íþróttanefnd ríkisins haft til atbug-
unar, hvort rétt væri að stofna til veðmálastarfsemi í þeim til-
gangi að afla iþróttahreyfingunni nokkurra tekna. Á Norður-
löndum hefur þessi starfsemi verið rekin liin siðari ár, eink-
um í sambandi við enska knattspyrnuleiki.
í samráði við menntamálaráðherra, sem einn getur veitt
leyfi til veðmálastarfsemi, hefur íþróttanefnd ríkisins skipað
þriggja manna undirbúningsnefnd og er Þorsteinn Einarsson
formaður hcnnar. Hinir tveir eru skipaðir eftir tilnefningu
sambandanna, Friðjón Þórðarson lögfræðingur (U.M.F.Í.) og
Jón Sigurðsson slökkviliðsstjóri (Í.S.Í.).
Þá hefur íþróttanefnd hlutazt til um það, að Jens Guð-
björnsson, formaður Glímufélagsins Ármanns, fari til Noregs
í vor og kynni sér þessa starfsemi, einkum í strjálbýlli hlut-
um landsins, þar sem aðstæður eru likar og á íslandi.
Norrænt æskulýðsmót.
Ungmennafélagar, sem hafa hug á að sækja norræna æsku-
lýðsmótið í Jýðháskólanum í Elverum í Austur-Noregi 19.—25.
júlí í sumar eru vinsamlega beðnir að láta U.M.F.Í. vita um
það sem fyrst og ekki síðar en 1. júlí. Hverjum ungmenna-
félaga er mikill fengur að þátttöku í slíku móti og væri því
mjög æskilegt að margir gætu tekizt þangað ferð á hendur.
Innleysið póstkröfurnar.
Skinfaxi sendi i vetur mörgum gömlum og nýjum kaupend-
um sjnum póstkröfu fyrir síðustu árgjöldunum. Margir liafa
brugðizt fljótt og drengilega við og innleyst póstkröfurnar.
Hinir eru vinsamlega minntir á að láta það ekki dragast lengi
úr þessu.