Skinfaxi - 01.11.1953, Síða 5
SKINFAXI
101
var háð á árið 1949, en vegna mikillar rigningar, varð
að láta þær keppnisgreinar fara fram innanhúss, sem
tök voru á. Gekk það ágætlega. Þrátt fyrir hið óhag-
stæða veður, voru áhorfendur fjölda margir, og virtust
þeir fylgjast með hverri keppni af lifandi áhuga.
— Þú hefur þá fyrir þitt leyti verið ánægður með
mótið?
— Já, alveg sérstaklega. Ég lít svo á, að þetta mót
hafi i rauninni harzlað starfsíþróttum völl, svo að nú
skipi þær ákveðinn sess í hugum fólks. Mér þykir ein-
sætt, að hér hafi fólkið fundið viðfangsefni, sem það
sækist eftir og unir vel við. Þess er og að geta, að
húnaðarfrömuðum landsins og Búnaðarsambands Suð-
urlands var mjög umhugað um, að mót þetta tækist
vel, og sýndu þeir mikinn velvilja í sambandi við undir-
búninginn. — Á samkomu, scm haldin var milli keppnis-
atriða, flutti landbúnaðarráðherra, Steingrímur Stein-
þórsson, ræðu, og sömuleiðis formaður Búnaðarfélags
Islands, Þorsteinn Sigurðsson. Samkomunni stjórnaði
formaður U.M.F. ölfusinga, Þórður Snæbjörnsson. —
Verzlunarfyrirtæki á félagssvæðinu gáfu verðlauna-
gripi. Olíufélög landsins gáfu farandhikar til verðlauna
fyrir dráttarvélaakstur, og Búnaðarfélag Suðurlands
gaf annan farandhikar, sem gengur til þess félags, er
flest stig hlýtur á starfsíþróttamóti. Er mjög gott til
þess að vita, að þetta fyrsta starfsíþróttamót skyldi
vekja svo óskipta atliygli, sem raun bar vitni.
— Já, það er mjög ánægjulegt og uppörvandi, að svo
vel skyldi takast. — Ilvað viltu svo segja almennt um
þessi mál, áður en við slítum talinu?
- Ég vil aðeins livetja ungmennafélög til að gefa
starfsíþróttunum gaum og nota veturinn vel til undir-
húnings starfinu á komandi sumri. Margir hafa haldið,
að starfskeppni og mót af þessu tæi sé erfið í fram-
kvæmd. En svo er alls ekki. 'Störf þessi eru næsta auð-
veld, ef rétt er á haldið. — Ég er að sjálfsögðu fús til