Skinfaxi - 01.11.1953, Side 34
130
SKINFAXI
braut kúlunnar í hringnum mjög milda hreyfiorku með sínura
snöggu viðbrögðum.
O’Brien, Ólympíumeistarinn ’52 eða kennarar hans, hafa þá
hugsað rökrétt. Djúp hnébeygja með framhalla líkamans niður
yfir fótinn, — elcki sveigður hliðhalli eins og áður, er léttari
og bindur síður vöðva, — og veitir kúlunni lengri hreyfing-
arbraut.
Ný vöðvabeiting við að kasta járnkúlu sem lengst frá tak-
mörkuðu athafnasvæði, hefur fært með sér ný Ólympíumet
(17.49 m) og heimsmet (18.02 m).
Kringlukast: Á síðustu Ólympíuleikum vann Amerikaninn
Iness kringlukastið. í apríl s.l. hafði hann kastað í þeim mán-
uði lengra en nokkur annar maður í Bandar. N.-Ameriku
(rúma 58 m). En hvað skeður? Heimsmethafinn fyrrv. Fortune
Gordien, sem varð 4. á s.l. Ólympiuleikum tekur sig til í s.l.
ágústmánuði og þyrlar kringlunni upp undir 00 metra (59.28
m). Nýtt heimsmet. Ótrúlegt afrek. En hver er talin ástæðan
fyrir framförunum. Styrkur og snerpa réttivöðva fótanna.
(Sérstaklega þjálfaðir við lyftingar). Mýkt, einbeiting hugans,
hárnákvæm tamning réttrar atriðaraðar, snerpa í beitingu
vöðva við færslu kringlunnar frá seilingarstöðu og að við-
skilnaðarpunkti úti af kastöxl og hraði í slætti kastarmsins
fram fyrir þvert brjóst. Þá er frjálsræðið í hoppstiginu í
hringnum einnig talin ástæða fyrir kastafrekinu, en eins og
kunnugt er, lioppa amerískir kringlukastarar úr upphafsstöðu
nær því að brún lcasthrings vinstra megin (miðað við þegar
horft er í kaststefnu). Með þessu afla þeir kringlunni lengri
hreyfingarbrautar og hafa sjálfir meira athafnasvæði fremst í
hringnum, til þess að stöðva sig að loknum hinum hröðu
snúningum og snöggu spyrnum og eldingarhröðu armsveiflu.
Góðir lesendur, allir þurfið þið að beita vöðvum til starfa.
Athugið eftir lestur þessa þáttar, liversu þið beitið vöðvum
ykkar til starfa! Hið minnsta starf, t. d. að þræða saumnál,
getur með skakkri vöðvabeitingu fært þér vanlíðan — stirð-
leika og gigt. Rétt vöðvabeiting eykur starfshæfni og afköst,
eflir velliðan og þar með lífsgleði.
Góðir íþróttamenn, gætið nákvæmni í vöðvabeitingu við
íþróttaiðkanir!
Þorsteinn Einarsson.