Skinfaxi - 01.04.1954, Page 9
SKINFAXI
9
Stenberg, reyndist okkur ágæta vel. Voru þeir Skúli
og Stenberg óþreýtandi að fræða okkur og skemmta,
meðan við dvöldum í borginni. Fleiri landar voru líka
oft með okkur.
Meðan við dvöldum í Stokkbólmi, voru þar stöðug
hátíðahöld vegna 700 ára afmælis borgarinnar. Var
skemmtilegra í borginni þess vegna, og sáum við
margan fagnað, þar á meðal dans kringum maí-stöng-
ina. Við komum á hinn fræga skemmtistað, Skansinn,
og var þar mikið um dýrðir. Mikið þótti okkur þar
koma til þjóðdansasýninga og fleiri atriða. Ekki var
síður stórfenglegt að sjá skóginn upplýstan með marg-
litum ljósum, þcgar kvölda tók. Talið var, að 25 þuó.
manns væru þarna þctta kvöld, en allt fór ágællega
fram. Drukkið fólk sásl þar ekki.
Einn daginn fórum við til Uppsala, sem er um
tveggja stunda akstur frá Stokkhólmi. Þar hittum \ið
áttræðan Svía, sem verið hafði prófessor og talaði hann
góða íslénzku. Var hann mæta vel að sér í íslenzkum
fornsögum og talaði um ýmsar söguhetjur sem kunn-
ingja sína.
Ferðafólkið á skenimtisiglingu í Stokkhólmi.