Skinfaxi - 01.04.1954, Blaðsíða 10
10
SKINFAXI
— Frá Stokkhólmi fóruð þið til Danmerkur?
— Já. Við fórum í bíl frá Stokkhólmi, gistum í
Jönköping, eldspýtnabænum, og var þar gaman að
koma, komum við í háskólabænum Lundi og heldum
þaðan til Malmö. Stigum við þar á ferjuna til Kaup-
mannahafnar. Þurftum við að hraða förinni, því að
svo hafði verið ráð fyrir gert, að við yrðum á mið-
sumarhátíð í Kaupmannhöfn. — Dvölin í Kaupmanna-
höfn var annars mjög vel skipulögð. Fékk hvert okkar
áætlun um það, hvernig þeim 3 dögum, sem við dveldum
í borginni, yrði eytt. Var staðið við þá áætlun. Það voru
dönsku ungmennafélögin, sem höfðu séð um þetta og
var sérstakur leiðsögumaður frá þeim, Aksel OIscíi,
með okkur alla dagana. Fór hann með okkur víða um
borgina, í dýragarðinn, Tívoli, Cirkus Schumann, söfn
og merkar byggingar. Var leiðsögnin góð, svo að við
undum prýðilega okkar hag.
Einn daginn fórum við í ökuferð út á Sjáland.
Komum við þá í Krónborgarkastala og Friðriksborgar-
Dansað kringum maí-stöngina á Vasatorgi.