Skinfaxi - 01.04.1954, Side 23
SKINFAXI
23
kenni okkar, tungu og þjóðerni, hvað sem á dynur.
Og siðast en ekki sízt að fara hófsamlega með fjár-
muni, svo við verðum ekki efnalega háðir hinu cr-
lenda valdi.
Lífið er endalaus barátta í einhverri mynd, ill eða
góð. Barátta fyrir daglegum þörfum, hagsmunum, réti-
indum, frelsi einstaklinga og þjóða, þroska og fram
förum hvers einasta manns. Án baráttu er ailt háð
kyrrstöðu og lmignun. En það skiptir miklu fyrir
hverju harizt er, og livernig barizt er. Við dáum alltaf
þá, sem berjast af drengskap fyrir góðu málefni.
Barátta allrar baráttu er baráttan fyrir frelsi ættjarð-
arinnar. Hún er sameiginleg, eilif og ævarandi, eins
fyrir því, þó frelsið sé fengið. Hún er eins og lífs-
baráttan sjálf: tilslökun veldur hnignun og frelsis-
skerðingu. Erfiðleikar fylgja allri baráttu, en þeir eru
til þess að sigrast á þeim, þó það sé ekki ævinlega hægt
í einni svipan. Jafnvel ósigur að vissu marki getur leilt
til sigurs og dýrmætrar reynslu.
Frelsi okkar Islendinga hefur þegar verið skert. Við
höfum einnig farið óvarlega með fjármuni, sem verður
að skoðast sem nokkurs konar ósigur. Hvort tveggja
minnir okkur á það, að á frelsisbaráttunni má aldrei
slaka, og að vera sjálfum sér nógur og öðrum óháður
f járhagslega er sá grunnur, sem allt sjálfstæði verður að
byggja á. Traust atvinnulíf, framleiðsla verðmæta til
lands og sjávar, er vitanlega nauðsynlegt skilyrði fyrir
efnalegu sjálfstæði. En það er ekki nóg. Það er engu
minni vandi að gæta fengins fjár en afla þess. Og þegar
alls er gætt, er ef til vill einn þýðingarmesti þáttur
sjálfstæðisbaráttunnar sá, að almennt sé gætt hófs x
meðferð tækni og fjármuna.
Tæknin er á vissan hátt góð, en henni fylgja hættux.
Við flýjum hvorki tæknina né hætturnar, sem hún
skapar. Eina ráðið er að snúast skynsamlega við hverj-
um þeim vanda, sem að höndum ber í hvert sinn. Það