Skinfaxi - 01.04.1954, Page 42
42
SKINFAXI
anna aftur við hálsinn, augun stór og skær, hornin á hyrndri
kind fínliðuð og fremur stutt. Haus á kollóttu fé má vera
aðeins grennri en á hyrndu.
2. Háls og herðar: Hálsinn skal vera stuttur, sívalur og
gildna mjög aftur, svo að sem minnst beri á samskeytum liáls
og bóga. Háls á hrútum á að vera mjög sver, en mun grennri
á ám einkum frammi við hausinn. Herðarnar eiga ag vera ával-
ar og sem bezt holdfylltar beggja megin við herðakambinn.
Rétt er að meta að jöfnu háls og herðar.
3. Bringa og útlögur: Bringa á að vera sem allra breiðust
og þarf að ná vel fram, a. m. k. þverhönd fram fyrir bóg-
leggi, þegar kindin stendur eðlilega. Þó bringan eigi að vera
vel breið fram, þá er enn meira áriðandi, að hún sé breið
aftur og geislungarnir komi vel út frá bringubeininu
milli bógleggja og fyrir aftan þá, svo að sem stærstur
flötur rnyndist neðan á brjóstkassanum. Útlögur rifjanna þurfa
að verða sem mestar, til þess að brjóstkassinn verði sem sí-
valastur og ekkert slöður aftan við bógana. Af þeim 10 stigum,
sem gefa má fyrir bringu og útlögur, er rétt að gefa 3 stig
fyrir bringu framan bógleggja, 4 stig fyrir bringu aftan bóg-
leggja og lögun geislunganna og 3 stig fyrir sjálfa hvelfingu
rifjanna.
4. Spjaldbreidd og styrkleiki: Spjaldhryggurinn á að vera
breiður, ávalur, sterkur og vel tengdur við brjóstkassann.
Háþornin mega ekki vera svo há, að hryggurinn verði eins
og rismikið þalc. Ekkert lin má finnast í bakinu, þegar stutt
er ofan á það.
5. Bakhold. Bakholdin eiga að vera svo mikil og þétt, að
hvergi finnist fyrir þverþornunum á brúnum spjaldhryggj-
arins, þegar tekið er út yfir hann á hrútum og geldfé.
Dilkgengar ær eru eðlilega holdminni en dilkar og geldfé,
en þurfa þó að vera sem holdmestar.
6. Malir. Malirnar eiga að vera breiðar, nokkuð langar, frem-
ur beinar, en mega þó halla nokkuð aftur. Þær þurfa að vera
sem allra bezt holdfylltar.
7. Læri. Lærin þurfa að vera framúrskarandi vel lioldfyllt
svo krikinn verði sem minnstur. Langleggurinn á að vera
stuttur og vöðvinn að ná sem bezt niður að hæklinum. Uppi
í krikanum á lærvöðvinn að vera bæði mikill og stinnur svo
að hann fylli vel greipina, þegar tekið er utan um lærið ofan
til með opinni greip.
8. Fætur. Fæturnir eiga að vera stuttir, sverir, beinir og
gleitt settir. Bilið milli hnjánna þarf að vera jafn breitt og