Skinfaxi - 01.04.1958, Blaðsíða 2
SKINFAXI
Altnema BÓKAFÉLACIÐ
Almenna hókafélagið leggur álierzlu á að gefa fé-
lögum sínum kost vel útgefinna og ódýrx-a hóka, bæði
fræðirita og góðra og skemmtilegra skáldrita..
Fyrsta mánaðarbók félagsins.
Sjávarföll, eftir Jón Dan, mjög skemmtileg og lif-
andi nútíðarskáldsaga, formuð af listrænni alvöi-u og
kunnáttu og fjallandi um vandamál einstaklinga og
þjóðai'heildar.
Maíbókin.
Gráklæddi maðurinn, eftir ameríska rithöfundinn
Sloan Wilson, vel skx-ifuð og mjög skemmtileg saga,
sem er óvenju jákvæð og laus við sjúklegt slen og aðra
menningarkvilla þessa tímabils.
Gerizt félagar Al-
menna bókafélagsins
og veljió ykkur ódýr-
ar, fallegar og góöar
bækur.
Júníbókin.
Til framandi hnatta, eftir Gísla Halldórsson verk-
fræðing, bólc um geimfarir framtiðarinnar og um þá
þróun, sem er undanfari þeirra. Bókin er skrifuð af
náinni þekkingu, áhuga, liugai-flugi og andlegu fjöri,
er fróðleg og skemmtileg í senn og prýdd mörgum,
sérstæðum og vel gerðum myndum.
Júlíbókin.
Netlurnar hlómgast, eftir stílsnillinginn Harry Mai-
tinson, einliver frægasta og fegursta skáldsagan í hólc-
menntum síðari áratuga í Svíþjóð.
Hver mánuður flytur merkar bækur eftir islenzka
og erlenda liöfunda.
♦ Skrlfstofa félagsins er í Tjarnargötu 14 Reykjavík ♦