Skinfaxi - 01.07.1959, Blaðsíða 13
SKINFAXI
77
einstakra félaga svo sem núgildandi lög
mæla fyrir um.
Löggæzla.
Þingið telur fengna reynslu af starfi
héraðslögreglu í þeim byggðarlögum, sem
hún liefur starfað, svo góða, að það bein-
ir þeirri áskorun til lilutaðeigandi stjórn-
arvalda, að þau liraði setningu reglugerða
um héraðslögreglu i öllum héruðum
landsins.
Áfengisvandamálið.
Þingið fordæmir hinn gengdarlausa á-
fengisaustur og þar af leiðandi óheil-
brigði í samkvæmislífi þjóðarinnar. Af
þeim sökum beinir það athygli ung-
mennafélaganna að því að hefja öflugt
starf til verndar æskulýðnum gegn neyzlu
áfengra drykkja og vinna að útrýmingu
skaðnautna úr landinu.
Starfsíþróttir og starfsfræðsla.
Þingið felur sambandsstjórn að vinna
markvisst að því, að starfsfræðsla ungl-
inga verði upp tekin á sem flestum svið-
um atvinnulífsins til þess m. a. að efla
áhuga og virðingu unglinga fvrir hvex’ju
Frá sambandsþingi, gestir, heiðursfélagar og fulltrúar.